Ömurlegt!!!
Elva Dögg fer ekki með til Póllands í þetta skipti því hún meiddist á æfingu í dag með landsliðinu. Þær voru að spila "brassa" og það voru u.þ.b. 3mín eftir af æfingunni, þegar ein sem er að æfa með landsliðinu ákvað að tækla hana Elvu Dögg svona skemmtilega í öklann svo kom önnur á móti og fór í hnéð á henni. En Elva Dögg fór strax til læknis sem er með landsliðinu, því þetta leit illa út. Læknirinn sagði að hún væri líklega með tognað liðband á innanverðu hægra hné og hann hélt að það hefði líkað komið eitthvað fyrir liðþófann, en krossböndin eru heil. Hún á eftir að fara í meira "tékk".
En við vonum að hún jafni sig sem fyrst.
____________________________________________
sunnudagur, september 29, 2002
föstudagur, september 27, 2002
Elva Dögg og Margrét Lára
fljúga út núna n.k. mánudagsmorgun. Þær þurfa að millilenda í Kaupmannahöfn og fljúga þaðan til Varsjá. Þær fljúga svo til baka á mánudeginum eftir viku. Það er vonandi að Elva Dögg komist í tölvu á meðan hún er úti í Póllandi til að kasta á okkur kveðju og segja okkur fréttir af ferðinni. En hvort sem hún getur það eða ekki, setjum við inn fréttir af leikjum og þess háttar hjá þeim.
Gangi ykkur vel, stelpur!!
____________________________________________
Þrjár valdar í úrtökur fyrir u-17
Þrjár ungar eyjahnátur hafa verið valdar í úrtökur þessa helgi fyrir u-17 ára landslið íslands. Stúlkurnar eru María Guðjónsdóttir, Thelma Sigurðardóttir og Inga Ósk Sigurðardóttir. Stelpurnar léku með 2.flokk félagsins í sumar, en María og Thelma verma miðár flokksins næsta sumar. Inga Ósk verður gjaldgeng í 2.flokk næsta sumar en hefur verið að spila uppfyrir sig í sumar og gert með prýði. María getur spilað næstum hvar sem er á vellinum en hennar helsti kostur er þrjóskan og áræðnin í að vinna leikina. Thelma er sóknarmaður og hefur hún skorað grimmt fyrir 2.flokkinn í sumar. Til hamingju með þetta stúlkur og vonandi komist þið í lokahópinn!
Elva Dögg Grímsdóttir
____________________________________________
fimmtudagur, september 26, 2002
KSÍ lokahófið.
Það næsta sem er á dagskrá hjá leikmönnum í estu deild karla og kvenna er sjálft lokahófið. KSÍ-lokahófið er þann 5.október n.k. og verður þar matur, skemmtiatriði og ball. "Show-ið" í ár verður Viva Latino, svo spilar hljómsveitin Spútnik fyrir dansi. Það er hægt að fræðast nánar um það á Broadway síðunni.
_____________________________________________
Margét Lára og Elva Dögg í U-19
Elva Dögg Grímsdóttir og Margét Lára Viðarsdóttir eru í hópi þeirra sem fara út til Póllands með landsliðinu, 19 ára og yngri. Þetta er frábært, til hamingju stelpur!! En það eru spurning hvort að Erna Dögg Sigurjónsdóttir eigi ekki einnig að vera þarna, allavega er það mitt mat!
_____________________________________________
miðvikudagur, september 25, 2002
Laugardaginn 21.september s.l., var ÍBVdagurinn haldinn.
Það á að reyna að halda upp á ÍBVdag núna tvisvar sinnum á ári, annan að hausti, sem kemur þá að fótboltanum og svo aftur að vori sem kemur þá að handboltanum. Hægt er að lesa um hann á nýju ÍBVsíðunni.
En um kvöldið var svo haldið lokahóf fyrir leikmenn ÍBV meistaraflokks og 2.flokks karla og kvenna, þetta hóf var haldið ásamt Kvennadeildinni og aðalstjórn ÍBV. Þetta var verið að prófa svona í fyrsta skiptið og heppnaðist vel. Og kominn tími til að reyna sameina allt þetta heila klabb.
En veitt voru verðlaun hjá bæði konu- og karlaflokkum, þið getið lesið um karlana á gömlu ÍBV síðunni.
En í Meistaraflokk Kvenna unnu til verðlauna :
Besti leikmaður : Michelle Barr
Efnilegust : Erna Dögg Sigurjónsdóttir
Mestu framfarir : Rakel Rut Stefánsdóttir
Markahæst(ar) : Margrét Lára Viðarsdóttir og Bryndís Jóhannesdóttir með 7 mörk hvor.
Marteinsbikarinn : Lára Dögg Konráðsdóttir
2. Flokkur :
Besti leikmaður : Margrét Lára Viðarsdóttir
Fréttabikarinn : Margrét Lára Viðarsdóttir
Við þökkum fyrir gott hóf og samstarfið í ár.
_____________________________________________
Tímabilið í ár...
Það er ekki mikið hægt að segja um boltann í dag, enda tímabilið búið í bili. Núna er bara að hlaupa og æfa fyrir næsta tímabil, það eru nú ekki nema 7-8 mánuður í það ;o). En svona endaði deildin í ár.
KR-ingar voru bæði Íslands- og Bikarmeistarar.
Félag Stig
1 KR 39
2 Breiðablik 31
3 Valur 30
4 ÍBV 23
5 Þór/KA/KS 16
6 Stjarnan 11
7 FH 8
8 Grindavík 4
Hægt að skoða nánar á KSÍ síðunni.
