Heimir ætlar að hjálpa okkur!!! :o)
Heimir ætlar að vera svo góður við okkur að koma með okkur á innanhúsmótið í enda nóvember. Og ætlar að vera "þjálfarinn" okkar í þeirri ferð!! Þá er búið að redda þeirri helgi, þá er bara restin af árinu efitr ;o)....
En þetta fer vonandi allt að koma hjá okkur.
Takk fyrir, Heimir!!!!!!!!! >
____________________________________________
fimmtudagur, október 31, 2002
Íslandsmótið Innanhúss 2002
Íslandsmótið í 1.deild kvenna verður haldið í KR-húsinu , Frostaskjóli laugardaginn 23.nóvember nk. frá kl.12:00-20:00 og eru svo úrslitin í bæði 1.deild karl og kvenna spiluð á sunnudeginum 24.nóvember í Smáranum í Kópavogi frá kl.12:00 - 17.00.
Svona líta riðlarnir út:
Í A-riðli eru: Breiðablik, FH, Grindavík, ÍA og Valur.
Í B-riðli eru: ÍBV, KR, RKV, Stjarnan og Þór/KA/KS.
____________________________________________
mánudagur, október 28, 2002
Íris og Heimir eignuðust strák!!
Íris Sæm. og Heimir Hallgríms eignuðust strák í gærmorgun. Við viljum bara óska þeim og auðvitað honum Hallgrími innilega til hamingju með litla peyjann!!!!!!!!!!!
TIL HAMINGJU!!!!!!!!!!!!!
___________________________________________
mánudagur, október 21, 2002
Erum komnar með tvo fasta tíma sem við getum notað!!
Jæja,núna erum við komnar með tvo fasta æfingatíma sem við vonandi notum vel. Svo ætlum við að reyna að fá fleiri tíma, allavega eins og einn upp í Íþróttamiðstöð. Hægt er að skoða æfingatöfluna hér, en hún er frekar fátækleg núna en þetta fer vonandi allt að koma.
_____________________________________________
þriðjudagur, október 15, 2002
Rakel og Laufey í Val
Laufey Ólafsdóttir og Rakel Logadóttir eru farnar yfir í Val, en þær skrifuðu undir 2ja ára samning við ÍBV í fyrra. Laufey er búin að skrifa undir félagaskipti úr ÍBV í Val og svo hefur fengist munnlegt samþykki frá Rakel Logadóttur um að skipta líka. En við þökkum þeim hinsvegar stutta dvöl í ÍBV.
___________________________________________
þriðjudagur, október 08, 2002
Elísabet fer fram á 5.500.000 kr í skaðabætur frá ÍBV!!
Elísabetu Gunnarsdóttur sem vikið var frá störfum hjá ÍBV í sumar hefur farið fram á 5.500.000 kr frá félaginu í skaðabætur. En inn í því er laun út þann tíma sem hún var ráðin sem þjálfari hjá félaginu, peningur sem fer í lögfræðiaðstoð og fleira.
Meira seinna!!
_____________________________________________
mánudagur, október 07, 2002
Lokahóf KSÍ.
Jæja,þá er lokahóf knattspyrnumanna og kvenna búið í ár. Og í ár fóru karla- og kvennalið ÍBV saman og var það mjög gaman. Finnur Kolbeinsson og Ásthildur Helgadóttir voru kosin leikmenn ársins í Símadeildum karla og kvenna af leikmönnum í deildunum. Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Björg Ásta Þórðardóttir voru valin efnilegust, en það er einnig valið af leikmönnum deildanna. Algjör snilld að Gunnar Heiðar hafi verið valinn og átti það sannarlega skilið. Til hamingju,Gunnar!!
______________________________________________
Ísland úr leik.
Ísland tapaði 2-5 gegn Pólverjum í 2. umferð undankeppni EM U19 landsliða kvenna. Pólsku stelpurnar komust yfir í byrjun leiks, Hólmfríður Magnúsdóttir jafnaði metin um miðjan hálfleikinn eftir gott einstaklingsframtak, en þær pólsku gerðu tvö mörk sitt hvorum megin við hlé. Margrét Lára Viðarsdóttir minnkaði muninn með marki eftir hornspyrnu. Pólska liðið varðist af krafti og beitti skyndisóknum, sem gáfu tvö mörk í lokin.
Síðasta umferð fór fram á sunnudag, en þá lék Ísland gegn Belgíu. Sá leikur endaði með 2-2 jafntefli. Sigrðuðu Belgar því riðilinn. Margrét Lára Viðarsdóttir gerði bæði mörk íslenska liðsins, sem lék manni færri síðasta hálftímann eftir að Pálu M. Einarsdóttur hafði verið vikið af leikvelli. Íslensku stúlkurnar enduðu í 3.sæti í sínum riðli og eru því úr leik.
En gaman af því hvað Margrét Lára var greinilega að standa sig vel. :o)
______________________________________________
fimmtudagur, október 03, 2002
Fréttir, 3. október 2002.
Stjórn kvennafótboltans segir af sér:
Urðum að láta Elísabetu hætta
-Annars hefðum við þurft að draga liðið út úr keppni, segir fráfarandi formaður.
Stjórn knattspyrnudeildar kvenna hefur öll ákveðið að segja af sér. Hefur hún farið þess á leit við aðalstjórn ÍBV að hún finni nýtt fólk í stjórn.
"Reksturinn er á núllinu og við erum í skilum við alla, við vitum ekki betur. Menn eru orðnir þreyttir og búnir að fá nóg eftir sumarið," sagði Sigurjón Þorkelsson fráfarandi formaður stjórnarinnar.
Sigurjóni finnst leikmenn ekki gefa nóg af sér við stjórnina og telur það vera eitthvað sem leikmenn í Eyjum mættu fara að huga að. "Ég er til dæmis sár yfir því að á lokahófinu í Týsheimilinu skyldi enginn úr leikmannahópnum þakka stjórninni fyrir sumarið. Það er kannski lýsandi dæmi um hugarfafrið hjá leikmönnum. Þeir vilja fá allt en gefa ekki nóg til baka. Sumar hefur verið erfitt en stjórnin var stofnuð fyrir fjórum árum og sumir ráðsmenn búnir að sitja í því allan tímann. Síðastliðið sumar vav erfiðara en öll hin árin til samans."
Sigurjón viðurkennir að það hafi verið erfið ákvörðun að láta Elísabetu Gunnarsdóttur, þjálfara, hætta. "Það var annað hvort að láta hana hætta eða draga liðið úr keppni því allnokkrir leikmenn ætluðu að hætta ef að hún yrði áfram. Við erum sprungnir enda fylgir þessu mikil vinna, miklu meiri en fólk heldur. Ég vona að aðalstjórn ÍBV finni gott fólk í stjórn og ég óska þeim velfarnaðar. Helst vildi ég sjá einhverja foreldra leikmanna koma inn í stjórnina en vi ðhöfum oft orðið fyrir harðri gagnrýni af þeirra hálfu. Hún hefur oft á tíðum ekki verið sanngjörn að mínu mati," sagði Sigurjón að lokum.
Óskar Freyr Brynjarsson, formaður aðalstjórnar ÍBV, segir að stjórnin væri að leita af nýju fólki í stjornina. "Við fengum fréttir af þessu í vikunni en þetta fólk hefur staðið sig vel. Ég er að vonast til að það muni starfa áfram fyrir ÍBV íþróttafélag í framtíðinni," sagði Óskar Freyr.
Tekið úr Fréttum, í dag, fimmtudaginn 3. október 2002.
___________________________________________
Margrét Lára búin að skrifa okkur frá Póllandi þar sem hún er í keppnisferð með landsliðinu. Kíktu á spjallið!!! :)
____________________________________________
miðvikudagur, október 02, 2002
Ísland vann!
Margrét Lára og félagar í u-19 spiluðu í dag við Bosníu-Hersegóvínu og unnu þann leik 1-0. Kristín Ýr úr Val skoraði markið á 89. mínútu. Þær sóttu nánast allan tímann og skoruðu víst tvö mörk sem voru dæmd af, það voru þær Margrét Lára ÍBV og Dóra M í Val sem skoruðu ógildu mörkin.
Þær spila næsta leik við Pólland þann 4. október.
____________________________________________
