Allt að fara í gang!!
Leikmannafundur var haldinn í dag, laugardag. Á honum var talað um það sem hefur verið að gerast og það sem er að gerast hjá okkur þessa stundina. Það er hægt að segja að það sé alveg hellingur að gerast, og við þökkum þeim sem að því standa. En núna er búið að setja allt af stað og byrjar undirbúningur fyrir næsta tímabil undir stjórn Heimis næsta þriðjudag.
____________________________________________
laugardagur, nóvember 30, 2002
Michelle verður með 2.flokk í sumar!!
Michelle Barr hefur verið ráðin til að vera með 2.flokk kvenna næsta sumar, en í vetur skipta þau Heimir, Stefí og Kári því á milli sín að vera með æfingar hjá flokknum. Þetta eru mjög góðar fréttir og er þarna mikill karakter og góður þjálfari á ferð.
___________________________________________
Það bætist í hópinn!!
Á morgun munu þær Olga Færseth og Pálína Bragadóttir skrifa undir tveggja ára samning við ÍBV, þetta eru frábærar fréttir og ekki amalegt að styrkja hópinn með aðalmarkaskorara í efstu deildinni seinustu ár. Við bjóðum þær innilega velkomnar til okkar og vonumst til að sjá þær sem allra fyrst í ÍBV-búningum. :o)
___________________________________________
miðvikudagur, nóvember 27, 2002
Heimir Þjálfari!!!
Nú hefur komið í ljós að Heimir Hallgríms hefur ákveðið að þjálfa okkur í ár, öllum til mikillar ánægju. Hann tilkynnti okkur stelpunum þetta á æfingu áðan. Hann sagði okkur hins vegar að það væri ekki enn komin stjórn, því hvetjum við alla sem hafa augastað á einhverjum í stjórn eða bara einfaldlega með tillögu, að koma því áleiðis til Heimis eða aðalstjórnar. Og um að gera að koma með hugmyndir!!!!!!!!
En það er gott að það er komin einhver mynd á þetta allt saman hjá okkur.... :o)
Biddý farin í ÍR!
Þann 20. nóvember skipti Bryndís Jóhannesdóttir yfir í ÍR. Þetta er ekkert voðalega spennandi fréttir fyrir okkur í ÍBV, en hún vildi taka sér frí frá efstu deild og það er bara vonandi að hún hún hafi gagn og gaman af.
Gangi þér vel, Biddý, og komdu nú fljótt aftur til okkar!!!
____________________________________________
LEIKMANNAFUNDUR!!!!!!!!
Það verður haldinn leikmannafundur n.k. laugardag. Hann byrjar kl.17:00 og verður í Týsheimilinu. Þetta er fundur sem er aðeins fyrir leikmenn, OG ÞAÐ EIGA ALLAR AÐ MÆTA!!!!!!
____________________________________________
þriðjudagur, nóvember 26, 2002
Íslandsmótið Innanhúss 2002 lokið!
Íslandsmótið Innanhúss búið í ár, og er hægt að segja að okkur munaðarleysingjunum (þ.e. við erum ekki enn komnar með þjálfara...) hafi bara gengið ágætlega. Þær sem fóru voru Petra Fanney, Elena, Lára Dögg, Rakel Rut, Erna Dögg, Margrét Lára, Elva Dögg, Sara, Hanna Guðný og Thelma. Eins og áður sagði þá var Heimir svo góður að koma með okkur.
Liðið spilaði í riðlakeppninni á laugardaginn í KR-húsinu og enduðu í öðru sæti í sínum riðli á eftir KR og komust því í undanúrslit. Á sunnudeginum var svo keppt í Smáranum, þar sem úrslitaleikir í bæði karla- og kvennaflokki voru spiluð og spilaði kvennaliðið þar á móti Val í undanúrslitum, en töpuðu þeim leik, þannig að liðið endaði í 3-4 sæti. KR var íslandsmeistari, Valur í öðru, ÍBV og Breiðablik í 3-4 sæti.
Hægt er að skoða úrslit leikja á KSÍ-síðunni.
_____________________________________________
föstudagur, nóvember 22, 2002
Íslandsmótið Innanhúss 2002!!
Íslandsmótið er núna um helgina, og eigum við að spila í KR-húsinu á laugardaginn, leikjaröðin hjá okkur er svona:
Kl. 16:43 ÍBV - Stjarnan
Kl. 17:29 RKV - ÍBV
Kl. 18:15 ÍBV - KR
Kl. 19:24 Þór/KA - ÍBV
Hægt er að skoða riðla og leikjaskipan í karla- og kvennaflokki á KSÍ-síðunni.
Endilega að koma og hvetja okkur!!!!! :o)
____________________________________________
miðvikudagur, nóvember 20, 2002
Fjórði fasti tíminn bættist í safnið!!
Erum komnar með nýjan tíma í Týsheimilinu, kíktu á æfingatöfluna.
Og svo allar að mæta :o) !!!!
___________________________________________
miðvikudagur, nóvember 06, 2002
FUNDUR - FUNDUR - FUNDUR!!!!!!!!!
Það verður fundur í dag, miðvikudag. Hann verður haldinn eftir æfingu hjá okkur í kvöld í Týsheimilinu kl 21.00. Óskar Freyr ætlar að mæta og segja okkur aðeins frá stöðu mála. Þangað viljum við hvetja ALLAR til að mæta sem eru á eyjunni, það á líka við um 2.flokk.
En æfingin er í kvöld í Íþróttahúsinu kl.19.00-20.30. Allar að mæta!!!!!
_____________________________________________
þriðjudagur, nóvember 05, 2002
Erum komnar með fasta tíma í Íþróttahúsinu.
Jæja, núna er svona að komast mynd á þetta hjá okkur, erum komnar með þrjá fasta tíma, tvo í nýja salnum í Íþróttahúsinu. Veit samt sem áður ekki með tímann í Týsheimilinu á fimmtudögum hvort við fáum að halda honum, en við fáum líklega að vita það von bráðar. En þið getið séð tímana sem við erum komnar með hérna.
___________________________________________
