Æfingaferð 5.-12. apríl!!
Stefnt er að því að fara til Portúgals, nánar tiltekið til Monte Gurdo Algarve, sem er við landamæri Portúgals og Spánar. Við ætlum að reyna að safna fyrir þessari ferð af krafti, og það eru nokkrar fjáraflanir í pokahorninu! Bónið gékk mjög vel seinustu helgi og gaf vel af sér, og við munum án efa taka annan svona laugardag. En ef við náum að safna þá munum við gista á Hotel Iberotel (smellið á hótelnafnið, til að skoða..) sem er fjögurra stjörnu hótel á besta stað. Við munum gista í 2ja manna lúxusherb.(nýtt), fá morgunverð og svo hádegis- eða kvöldverð. Fáum tvo leiki til að spila.
Æfingastaðurinn sem við verðum á heitir Vila Real (smellið á nafnið..).
Þessi staður er um 40 mínútur frá Faro, og um 20 mínútur frá staðnum sem við vorum á í fyrra. Nú er bara að vera duglegar að safna og koma okkur út!! :o)
____________________________________________
fimmtudagur, janúar 23, 2003
Margrét Lára og Olga í landsliðshóp!!
Margrét Lára Viðarsdóttir og Olga Færseth hafa verið valdar í 17 manna æfingahóp hjá A-Landsliðinu. En það er vináttulandsleikur hjá Landsliðinu þann 16. febrúar n.k.
Íslensku stelpurnar spila þá við landslið Bandaríkjanna, leikið verður í Charleston.
Þetta er alveg frábært hjá okkar stelpum og frábært fyrir hana Margréti Láru sem er án efa með bestu leikmönnu Íslands, og ekki nema á 17. ári.
TIL HAMINGJU STELPUR OG GANGI YKKUR VEL!! :o)
____________________________________________
