SKILA INN PENINGUM!!!!!!!!
Núna þurfa þær sem ekki eru búnar að skila inn peningum fyrir lakkrís-sölu og styrktarlínur að skila peningunum strax inn til Önnu Siggu annað hvort að fara með þetta heim til hennar eða koma með á æfingu á morgun, föstudag!
ATH. Það verður að skila þessu inn strax.
Anna Sigga!
______________________________________________
fimmtudagur, febrúar 27, 2003
miðvikudagur, febrúar 26, 2003
Nýtt Spjall!!
Það er komið inn nýtt spjall, það er aðeins öðruvísi en um að gera að byrja að spjalla!
_____________________________________________
þriðjudagur, febrúar 25, 2003
Æfingaleikir!!
Um helgina voru spilaðir tveir æfingaleikir. Á laugardaginn við Breiðablik í Fífunni og unnum við þann leik 4-5, Margrét Lára skoraði 2 mörk, Sara og Olga eitt hvor, 1 sjálfsmark.
Á sunnudeginum spiluðum við á Krikanum,úti í ömurlegu veðri á móti FH, sá leikur fór 0-1 fyrir okkur. Sara skoraði markið í þessum leik.
Næstu leikir eru svo leikir í Deildabikarkeppninni, en fyrsti leikurinn er þann 23.mars á móti Val.
_____________________________________________
þriðjudagur, febrúar 18, 2003
Skila inn til Önnu Siggu!!
Anna Sigga vildi biðja alla um að skila inn peningum úr styrktarlínum, þó svo að þið getið haldið áfram að safna styrktarlínum, en þetta er gert til þess að það sé hægt að sjá betur hvað hver er komin með til að hægt verði að plana fleiri fjáraflanir.
Svo á einnig að skila lakkríspening á þriðjudaginn 25.febrúar til Önnu Siggu. Það á að skila inn öllum peningnum, ekki bara það sem þarf að senda í bæinn.
Svo eitt enn, þær sem eru með peninga fyrir bílum síðan í fyrsta og öðru bóni þurfa að skila því inn sem fyrst til Önnu Siggu.
_____________________________________________
mánudagur, febrúar 17, 2003
Hliðarlínan!!
Kíktu á Hliðarlínuna, smá skoðanakönnun fyrir okkur að prófa!
Er einnig hérna hægra megin á síðunni á bláum reit sem heitir Vote!
____________________________________________
mánudagur, febrúar 10, 2003
BÓN - BÓN
Næst komandi laugardag frá kl09:00, verðum við stelpurnar í Áhaldahúsinu að bóna og í þetta skiptið ætlar Olís að styrkja okkur um bón og önnur efni. Vonandi að sem flestir láti sjá sig og komi með bílana í bón og þvott til að styrkja okkur! Það fara svo að bætast fleiri fjáraflanir í hópinn og við verðum bara að vera eins duglegar og við getum að safna.
Svo má ekki gleyma styrktarlínunum sem allar geta safnað hjá fólki í kringum sig, en ekki í fyrirtækjum.
Þessar styrktarlínur koma svo í leikskránni.
____________________________________________
