ÍBV-Valur Deildarbikar
Á laugardaginn s.l. lékum við við Val í Reykjaneshöllinni. Valsstelpurnar komust í 0-1 mjög snemma í leiknum og skömmu seinna komust þær í 0-2. Þá tókum við okkur á og skoruðum næstu 3 mörk og staðan var orðin 3-2, þær náðu að jafna, komust svo yfir og leikurinn endaði 3-4 Val í vil.
Mörk ÍBV skoruðu Olga 2 og Margrét Lára 1. Þess má geta að þetta eru fyrstu mörk Olgu fyrir ÍBV í skráðum leik og vonandi eiga mun fleiri eftir að fylgja.
Næsti leikur er á laugardaginn við Stjörnuna.
____________________________________________
þriðjudagur, mars 25, 2003
fimmtudagur, mars 20, 2003
Fyrsti deildarbikarleikurinn í ár!!
Fyrsti deildarbikarleikurinn í ár er laugardaginn 22. mars í Reykjaneshöllinni. Leikurinn er á móti Val og byrjar kl.18:00.
Á sunnudaginn er svo æfingaleikur á móti FH á Kaplakrika kl.09:00 og verður án efa mikið fjölmenni á leiknum!?! :o)
Hægt er að skoða næstkomandi leiki á KSÍ-síðunni.
_____________________________________________
sunnudagur, mars 16, 2003
Allir að bóna!!
Jæja,núna er orðið mjög stutt í æfingaferðina og núna verða þær sem eiga lítinn pening að taka til hendinni og byrja að bóna eins og þær geta sjálfar, það er marg oft búið að segja að það sé til efni til að bóna og að það sé hægt að nálgast það. Þannig að það verður bara að drífa sig áfram og byrja að bóna ef þið viljið ná inn meiri pening.
Getið hringt í Láru Dögg, Elvu Dögg, Margréti Láru, Karítas eða Lind til að nálgast bón og önnur efni til þrifanna.
Það er enn nægur tími til að safna styrktarlínum, en peningur sem margar eru enn með heima hjá sér frá styrktarlínum og öðru á að skila inn STRAX til Önnu Siggu.
____________________________________________
