ÍBV Meistaraflokkur Kvenna

fimmtudagur, apríl 24, 2003

Tveir leikir um helgina!

Á n.k. laugardag spilum við við Breiðablik í Fífunni kl.15:00 og á sunnudaginn spilum við á móti Þór/KA/KS á gervigrasinu í Laugardalnum, kl.13:00. Þetta eru seinustu leikirnir fyrir úrslitakeppnina en hún byrjar aðra helgi.
_________________________________________________

ÍBV-KR Deildarbikar!!

Sunnudaginn 13.apríl kepptum við við KR í deildarbikarnum og bar leikurinn það með sér að allar voru nýkomnar úr æfingaferðinni. Það var vel tekið á í ferðinni og allar mjög þreyttar eftir hana eins og gefur að skilja. Leikurinn endaði 2-1 ÍBV í vil. Margrét Lára og Olga skorðuðu mörkin.
________________________________________________

þriðjudagur, apríl 01, 2003

Stutt í ferð!!

Jæja, nú eru bara nokkrir dagar í ferð og vonandi allar tilbúnar með passa og allt þess háttar. En það var fundur á seinasta fimmtudag og þær sem voru ekki þar geta séð hvað var spjallað um, en Heimir er búinn að setja það helsta inn á spjallið okkar.
____________________________________________

ÍBV-Stjarnan Deildarbikar

Laugardaginn 29. mars s.l. kepptum við við Stjörnuna í Fífunni í Kópavogi. Leikurinn endaði 3-1 fyrir okkur og þar með fyrstu stigin í höfn í deildarbikarnum. Margrét Lára skoraði 2 mörk og Sara 1 mark.
Næsti leikur er við KR sunnudaginn 13.apríl, en þeim leik verður líklega breytt.
____________________________________________