ÍBV Meistaraflokkur Kvenna

föstudagur, maí 30, 2003

ÍBV-Breiðablik!!
Mánudaginn 2. júní kl.20:00


Á mánudaginn 2.júní fáum við Breiðabliksstelpur í heimsókn, þetta verður mjög spennandi leikur þar sem við sitjum nú í þriðja sæti og þær í því fjórða. Leikir okkar á móti Breiðablik hafa alltaf verið mjög spennandi og verður gaman að sjá þennan leik. Við viljum enn og aftur biðja fólk að koma og hvetja okkur því við þurfum á því að halda því það er strax komin spenna í deildina og við erum aðeins einu stigi á eftir tveimur efstu liðunum í deildinni eftir leiki seinustu umferðar. Þetta verður hörkuleikur og hvetjum við alla sem geta séð sér fært að koma að láta sjá sig.
________________________________________________

Tap gegn Val!!
Valur-ÍBV 29.maí


Leikurinn í gær fór fjörlega af stað og var orðinn spennandi strax, bæði lið fengu góð færi í þessum leik en það var í okkar hlut að skora fyrsta markið í leiknum og það var Margrét Lára sem skoraði fyrsta mark sitt í deildinni í sumar eftir að koma inn eftir meiðsli. Valsarar jöfnuðu svo með skoti beint úr aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn hægra megin,sláin inn. Staðan var því 1-1 í hálfleik. Í seinni hálfleik fengum við allavega þrjú mjög góð færi þar sem við náðum ekki að setja boltann í netið. Olga bætti svo við okkar öðru marki og hennar sjötta í deildinni. Valsarar jöfnuðu svo aftur, nú eftir horn. Svo rétt undir lokin fengu Valsara vítaspyrnu, eina af þessum mjög ódýru. En það var dæmd hendi en við erum með það á hreinu að þetta var "bolti í hönd" ekki "hönd í bolta". Eins og sjá má hérna eru öll þeirra mörk úr föstum leikatriðum.
En svona er þetta, heppnin er ekki oft okkar og núna er það bara næsti leikur. KR-ingar eru eftstar með 7 stig, Valur í öðru með 7 stig og ÍBV í þriðja með 6 stig.
Hægt er að skoða stöðu deildarinnar, næstu leiki og nýjustu úrslit hér.
_________________________________________________

mánudagur, maí 26, 2003

Valur-ÍBV!!
Fimmtudaginn 29.maí kl.16:00


Á fimmtudaginn 29.maí munum við spila við Val á Hlíðarenda. Völsurum er spáð Íslandsmeistaratitlinum í ár og því mjög erfiður leikur fyrir höndum. Við erum búnar að fá mikinn stuðning hérna heima og vonumst til þess að eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu láti sjá sig og hvetji okkur áfram í þessum leik.
________________________________________________

Sex stig í hús!!
ÍBV-Þróttur/Haukar 24.maí


Á laugardaginn s.l. spiluðum við við Þrótt/Hauka. Veðrið var gott, völlurinn góður og hópurinn ágætlega stemmdur. Olga braut ísinn í leiknum og skoraði fyrsta markið og reyndar svo annað í fyrri hálfleik og staðan 2-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik komum við ákveðnari til leiks og komu þá þrjú mörk á stuttum tíma eða á um 5 mínútum og þar voru að verki Mhairi, Karen og Olga og Olga komin með þrennu í leiknum. Mhairi setti svo 2 mörk til viðbótar og var sem sagt líka komin með þrennu í leiknum. Tvö seinustu mörkin skoruðu varamennirnir Thelma og Lára Dögg. En það vottaði fyrir smá einbeitningarleysi í lokin fyrir framan okkar mark og skoruðu þær seinasta markið í leiknum og endaði leikurinn því 9-1 okkur í vil. Næsti leikur er á móti Val á Hlíðarenda og það verður mjög erfiður leikur enda er þeim spáð efsta sætinu í deildinni í sumar. Þess má geta að Valur og KR áttust við á laugardaginn og endaði leikurinn 2-2 sem er mjög hagstætt fyrir okkur.
Hægt er að skoða nýjustu úrslit, næstu leiki og stöðuna í deildinni hérna.. Og velja svo Landsbankadeild Kvenna efst á síðunni.
_________________________________________________

föstudagur, maí 23, 2003

ÍBV-Þróttur/Haukar!!
Laugardaginn 24.maí kl.14.00


Á morgun laugardaginn 24.maí kl14:00 munum við mæta Þrótti/Haukum á Hásteinsvelli. Það voru margir sem létu sjá sig á seinasta leik hjá okkur og við vonum að eyjamenn fjölmenni á völlinn og hvetji okkur. Það var alveg frábært að sjá allt þetta fólk á vellinum á þriðjudag og við þökkum þeim fyrir og vonum að það bætist í hópinn.
________________________________________________

miðvikudagur, maí 21, 2003

Fyrstu þrjú stigin í höfn!!
ÍBV-Stjarnan 20.maí

Í gær, þriðjudag spiluðum við við Stjörnuna og á þriðju mínútu kom fyrsta markið. Mhairi og Olga spiluðu vel saman fyrir framan markið og endaði með því að Mhairi skoraði fyrsta markið í leiknum og sitt fyrsta í deildinni fyrir ÍBV í sumar. Lind skoraði svo með skoti úr teig, en hún fékk takkaskó hjá henni Olgu lánaða fyrir leikinn og ætlar víst ekki að skila þeim aftur :o). Olga skoraði svo einnig sitt fyrsta mark fyrir ÍBV í deildinni í sumar og ekki sitt síðasta. Staðan var 3-0 í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var miklu rólegri og gerðist ekki mikið þá. En Olga bætti einu marki við í seinni hálfleik og endaði leikurinn því 4-0 ÍBV í vil. Mikið var af fólki á vellinum sem var alveg frábært, við þökkum þeim fyrir að mæta og vonumst til að sjá sem flesta á leiknum á laugardaginn.
__________________________________________________

mánudagur, maí 19, 2003

Fyrsti leikurinn á Þriðjudag!!!
ÍBV-Stjarnan

Á morgun, þriðjudag er fyrsti leikurinn hjá okkur í Landsbankadeildinni í ár. Leikurinn verður spilaður á Hásteinsvellinum kl.20.00.
Stjörnunni er spáð 6.sæti í deildinni en okkur 4.sæti. Flestir leikir okkar við Stjörnuna hafa verið mjög spennandi og vonum við til að sjá sem flesta á leiknum á morgun að styðja við bakið á okkur og auðvitað á öllum leikjum okkar í sumar.
_________________________________________________

fimmtudagur, maí 15, 2003

Spáin fyrir sumarið!!

Þjálfarar og nokkrir leikmenn úr kvennadeildinni komu saman í gær og spáðu í spilin, og spáin var svona:
Valur
Breiðablik
KR
ÍBV
Þór/KA/KS
Stjarnan
Þróttur/Haukar
FH

**En þið getið kosið hérna á Hliðarlínunni hjá okkur!!**
_______________________________________________

Íslandsmótið að byrja!!!!

Á næsta þriðjudag hefst slagurinn fyrir alvöru en þá byrjar Landsbankadeildin og eigum við fyrsta leik hérna heima á Hásteinsvelli við Stjörnuna. Við vonum að fólk reyni að fjölmenna á leikinn og hvetji okkur til dáða. Næsti leikur er einnig heima, á móti Þrótti/Haukum en hann er 24.maí.
_________________________________________________

Skila inn ársmiðum og happdrætti!!

Skila á inn ársmiðum og happdrætti um helgina. Allar að drífa sig að selja eins og þær geta.....
__________________________________________________

ÍBV-Breiðablik!!

Kannski svolítið seint í rassinn gripið að fara að skrifa um þennan leik, en það er best að skrifa þetta hér samt sem áður. Við töpuðum þessum leik 4-2 fengum á okku þrjú fyrstu mörkin á fyrstu 8mínútum leiksins. Sem var alveg hræðilegt. Þannig að við komumst ekki áfram í þetta skiptið. Breiðablik og Valur kepptu svo um fyrsta sætið og vann Valur þann leik.
________________________________________________

föstudagur, maí 02, 2003

Árskort og happadrætti!!

Erum byrjaðar að selja Árskort fyrir tímabilið, kortið kostar 5000.- kr og það er hægt að nálgast það hjá leikmönnum M.fl.kv ÍBV.
Einnig förum við að fara að ganga í hús og selja Happadrættismiða. Það er hver stelpa með götur til að selja í og verður gengið í hús hvað á hverju.
____________________________________________

Komnar í Undanúrslit í Deildarbikar!!

Síðustu helgi spiluðum við við Breiðablik á laugardeginum og unnum þær 3-5, Breiðablik komst yfir 1-0 snemma í leiknum. Í seinni hálfleik var staðan svo orðin 1-5 fyrir ÍBV og endaði svo leikurinn 3-5 fyrir okkur.
Einnig spiluðum við við Þór/KA/KS og var sá leikur ekki mikið fyrir augað en sá leikur endaði 4-2 fyrir ÍBV, Þórsstelpur komust yfir 0-2 og þannig var staðan í hálfleik, en endaði þó með okkar sigri og það er það sem telur.
Eftir þetta sátum við í 2.sæti og undanúrslitin byrja á morgun, laugardag, með leik KR og Vals. Á sunnudaginn spilum við svo við Breiðablik kl16.30.
En þetta er í fyrsta skiptið sem ÍBV fer í undanúrslit í Deildarbikarnum.
_____________________________________________