Frábær leikur og ótrúleg stemming!!
I gær spiluðum við við KR á Hásteinsvellinum í 8 lida úrslitum VISAbikarsins. Liðið ætlaði aldeilis að gera betur en í seinasta og það var alveg ljóst að þær áttu aldrei ad fá að komast inn í leikinn. Þetta var alveg frábær leikur og sýnir vel styrk liðsins og ætti ad gefa okkur smá púst fyrir komandi leiki. En mörkin skoruðu Olga 3, Karen 1. Í leiknum lentu Ásthildur Helgadottir og markmaðurinn okkar, Rachel í samstuði(eða samstöðu eins og Sara kallar þetta :o)..) og þurfti Ásthildur að fara af velli en hún fékk gat á hausinn, Rachel rotaðist í smá stund en kláraði leikinn. Stemmingin var hreint út sagt frábær og mikill fjöldi á vellinum. Vid viljum þakka þeim kærlega fyrir sem lögðu leid sína á völlinn. Rauðagerðisfólkið var alveg frábært, med söngva og fleira!! Svona á þetta að vera, þvílík stemming. Núna er 10 daga pása og næsti leikur á móti Stjörnunni i Garðabæ 2.júlí.
_________________________________________________
laugardagur, júní 28, 2003
föstudagur, júní 27, 2003
Heimir med sma "comment" a Eyjar.net. Endilega skodid siduna, skemmtileg sida og alltaf ferskar fréttir... :o)
_________________________________________________
Mikid i hufi!!
Vid viljum minna a ad i dag er otrulega mikilvaegur leikur hja okkur eins og allir aettu nu ad vita, en i kvold spilum vid vid KR i 8 lida urslitum VISAbikarsins. Seinasti leikur okkar a moti KR for ekki eins og vid vildum en i dag viljum vid hefna ofaranna.
Og audvitad thurfum vid a ollum studningi ad halda, vedrid verdur ekki betra, flottur vollur, 2 god lid og mikid i hufi Svo vid hvetjum alla sem vettlingi geta valdid ad skella sér a vollinn og audvitad reyna ad maeta annad hvort i IBV buning eda i einhverju hvitu, allavega ekki neinu rondottu :o) !!
Endilega skellid ykkur a vollinn og hvetjid okkur til dada....
Afram IBV!!!!!
_________________________________________________
Ekki haegt ad nota islenska stafi
Thvi midur er ekki haegt ad nota islenska stafi nuna, veit ekki hvad malid er, en thad er eitthvad verid ad breyta thessu bloggdoti. Thid verdid bara ad fyrirgefa thad og vid vonum bara ad thetta lagist sem fyrst, a medan verdur bara ad vera svona sms-still a thessu ollu saman..?!
_________________________________________________
miðvikudagur, júní 25, 2003
8 liða úrslit bikarsins!!
ÍBV-KR Föstudag kl.20.00
Á föstudaginn nk. koma KR stelpurnar til okkar í 8 liða úrslitum VISA-bakarsins. Spilað verður á Hásteinsvelli kl.20.00. Við skulum vona að veðrið verði búið að lagast og að við sjáum mörg andlit á vellinum að hvetja okkur áfram.
Segðu okkur hvernig þú heldur að leikurinn fari hérna á Hliðarlínunni!!
_________________________________________________
Verðum að halda haus og standa okkur í næsta leik!!
KR-ÍBV
Á mánudaginn 23.júní spiluðum við við KR í Frostaskjóli og við byrjuðum vel, en svo var eins og það hafi farið allt loft úr mönnum og það var mikið stress í gangi. Við fengum fá færi í þessum leik og náðum ekki að nýta þau. Við verðum einfaldlega að taka okkur saman í andlitinu fyrir föstudaginn en þá koma KR-stelpur í heimsókn hingað til Eyja því þá eru 8liða úrslit Visa-bikarsins. Þetta eru auðvitað ótrúlega mikilvægir leikir báðir tveir og annar er tapaður svo það er vonandi að gangur á liðinu þá.Hægt er að sjá nýjustu úrslit, næstu leiki og stöðu deildarinnar á KSÍ síðunni.
_________________________________________________
föstudagur, júní 20, 2003
ÍBV-FH 8-0!!
Á föstudaginn sl. spiluðum við við FH hérna á Hásteinsvellinum, leikurinn endaði 8-0. Staðan var 3-0 í hálfleik. Mörkin skoruðu Margrét Lára 4, Íris 2, Olga 1 og Michelle 1.
_________________________________________________
ÍBV-FH!!!!!!!!!
Viljum minna á leikinn í dag á Hásteinsvelli kl.20:00.
Ef við náum sigri í dag sitjum við í 2 sæti með 15 stig og verðum því stigi á eftir KR sem er í fyrsta með 16stig. KR vann Stjörnuna í gær 0-3 en Valur tapaði fyrir Breiðablik 3-2, sem kemur okkar ákaflega vel í baráttunni um titilinn. Valur er nú í 2 sæti með 13 stig og við í 3 sæti með 12 stig, því verðum við að sigra í dag. Og vonandi að þið hjálpið okkur með það! Flottur völlur-fínt veður, allir að skella sér :o) !!
Hægt er að skoða stöðuna, nýjustu úrslit og næstu leiki á KSÍ.is
__________________________________________________
fimmtudagur, júní 19, 2003
ÍBV-FH!!
Föstudaginn 20.júní
Leikurinn sem átti að fara fram í dag, fimmtudag. Hefur verið frestað til morguns, föstudags. Spilað verður á Hásteinsvelli, kl.20:00.
Komið og látið sjá ykkur... Við þurfum á ykkur öllum að halda! :o)
_________________________________________________
Út í hött! Leiknum hjá okkur í dag frestað...
Í dag áttum við að keppa við FH á Hásteinsvellinum, en honum hefur verið frestað vegna leiks ÍBV og Fram í karladeildinni. Jáh, leiknum sem er búið að fresta síðan á mánudag. En það er svoleiðis traðkað á kvennafótboltanum, að okkar leikur var bara færður fram á morgun. En það var svo sem komin ágætis lausn á vandan því Heimir hafði talað við Sigga Víðis þjálfara kvennaliðs FH og þeir ákváðu að skipta á heimaleik og útileik, þ.e.a.s. að við færum í Hafnarfjörðinn í dag og þær kæmu þegar við ættum að eiga útileik, yfirvöld fótboltans samþykktu þetta enda ósk frá báðum þjálfurum enda vildi Siggi Víðis ekki heldur spila á föstudag því að næsti leikur í deildinni er á mánudag, þá förum við í Frostaskjólið en FHstelpur eiga Þrótt/Hauka á Kaplakrika. Og þar á eftir er bikarinn á föstudag, þannig að þetta eru 3 leikir á viku. En allt kom fyrir ekki, Heimir hóar út allt liðið og spyr hvort mannskapurinn sé til í þetta, þ.e. að fara í Krikann á morgun og skipta þessu svona við FH. Engin spurning, allar voru til í það. Það var búið að ganga frá öllu, flugi frá bakka, bílaleigubílum og allt tilbúið. En þá ákváðu yfirvöldin að hætta við þetta og að leikurinn YRÐI á föstudaginn í Eyjum. Við erum allar mjög ósáttar við þetta og skildi engan undra....!!!! :o /
Einnig var prófað að biðja um að fá leikinn hjá okkur færðan fyrir leikinn hjá körlunum í dag, spila um 17.30-18.00, og það var ekki hægt!!
En svona er þetta, og það er búið að reyna allt!! Hvað finnst þér, endilega tjáðu þig í Gestabókina okkar.
__________________________________________________
miðvikudagur, júní 18, 2003
ÍBV-FH á morgun!!
Við viljum minna á leikinn hjá okkur á móti FH. Leikið verður á Hásteinsvelli á morgun, fimmtudag kl.20:00. Eitthvað á nú veðrið að skána, þannig að við verðum bara
að bíða og vona að leikurinn verði á sínum tíma.
Hvetjum alla til að mæta og hvetja okkur áfram!!
Áfram ÍBV!!!!!!
_________________________________________________
mánudagur, júní 16, 2003
Búið að draga í bikarnum!!
ÍBV-KR 27.júní
Í hádeginu í dag, kl12:00 var dregið í 8 liða úrslit VISA bikars kvenna. Við fengum KR, leikurinn verður föstudaginn 27.júní kl.20:00 á Hásteinsvelli. En á mánudeginum á undan þann 23.júní munum við spila við KR í deildinni. Þetta verða án efa hörkuleikir báðir tveir og hægt að segja að þetta verði bæði stórleikir umferðanna bæði í bikar og deild. En hérna fyrir neðan er hægt að sjá bikarleikina sem verða þann 27.júní, allir kl.20:00. Svo er bara að koma að hvetja okkur áfram!! :o)
Valur - Þór/KA/KS
ÍBV - KR
Stjarnan - Fjölnir
FH - Breiðablik
__________________________________________________
Næsti leikur á fimmtudaginn!!
ÍBV-FH kl.20:00
Á fimmtudaginn koma FH-stelpur í heimsókn til okkar. Leikurinn verður á Hásteinsvellinum kl.20:00. Allir leikir hjá okkur skipta mjög miklu máli enda ætlum við okkur að vera í toppbaráttunni. Við erum núna í 3 sæti með 12 stig eftir fimm leiki á eftir KR og Val sem eru með 13 stig. FH-ingar eru í 6 sæti með 3 stig með 11 mörk í mínus. FH-stelpur eru baráttuglaðar og þetta verður örugglega hörkuleikur. En við vonumst til að sjá sem flesta á leiknum, því það er alveg ótrúlega gaman að sjá allt þetta fólk sem hefur lagt leið sína á leikina hjá okkur í sumar og það er alltaf að bætast í þann hóp. Við viljum benda fólki á að skrifa endilega í Gestabókina okkar og kasta endilega á okkur (baráttu?)kveðju, því það eru einnig alltaf að aukast heimsóknir á síðuna.
Sjáumst svo á fimmtudaginn á vellinum, áfram ÍBV!!
________________________________________________
Margrét Lára og Olga með sitthvort markið fyrir Ísland!!
Margrét spilaði sinn fyrsta leik fyrir A-landsliðið..
Olga var í byrjunarliði Íslands á laugardaginn þegar Íslenska kvennalandsliðið mætti Ungverjum á Laugardalsvellinum. Olga skoraði annað mark Íslendinga en Olga hefur spilað 38 leiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim 10 mörk, alveg ótrúlegur markaskorari þarna á ferðinni. Margrét Lára kom inn á og skoraði með sinni fyrstu snertingu fyrir A-landsliðið, en þetta er í fyrsta skiptið sem hún er í leikmannahópi og því fyrsta skiptið sem hún kemur inná, aðeins 16 ára að verða 17. Margrét Lára er alveg ótrúlegt efni og ein sú besta sem hefur komið upp í meistaraflokk á landinu. Eftir leikinn fór Margrét Lára á Laugarvatn ásamt U-17 en þær eru svo að fara út til Svíðþjóðar 29.júní og eru að fara að spila þar á Opna Norðurlandamótinu.
_________________________________________________
þriðjudagur, júní 10, 2003
Margrét Lára í U-17!!
Margrét Lára hefur verið valin í U-17 landsliðið sem fer á Opna Norðurlandamótið í Svíðþjóð um mánaðarmótin júní-júlí.
Hérna er hægt að skoða hóp og dagskrá U-17!!
Til hamingju og gangi þér vel!!
_________________________________________________
Margrét Lára og Olga í A-Landsliðið!!
Þær Margrét Lára og Olga hafa verið valdar í 18manna hóp A-landsliðsins, en íslenska landsliðið er að fara að spila við Ungverjaland á Laugardalsvelli þann
14. júní. Þetta er líklega hættulegasta sóknarparið á landinu og það er vonandi að Margrét fái að spila með Olgu fremst með landsliðinu en þær eru báðar búnar að standa sig mjög vel það sem af er sumri. Olga er búin að skora 8 mörk í 5 leikjum og Margrét Lára er búin að skora 4 mörk í 3 leikjum.
Til hamingju stelpur og gangi ykkur rosalega vel!!
Hægt er að skoða hóp og dagskrá á ksí.is
________________________________________________
Karen Burke rænd!!
Brotist var inn í íbúð Karenar í Englandi og öllu stolið, VHS, DVD, sjónvarpi, græjum, skóm , fötum þ.e.a.s. öllu sem hún átti þarna heima hjá sér. Sem betur fer var bílinn hennar heima hjá bróðir hennar því að ræningjarnir stálu meira að segja aukabíllyklunum hennar þannig að það á eftir að vera mjög erfitt fyrir hana að geta lagt bílnum fyrir utan heima hjá sér þar sem þeir eru með aukalyklana. Þetta er alveg ömurlegt, en hún fer í dag til Englands að kíkja á þetta. En Karen á afmæli á föstudaginn næsta og við stelpurnar og stjórnin ætlum að safna pening fyrir hana og þeir sem hafa áhuga á að hjálpa okkur eru velkomnir í hópinn. Við ætlum að gefa upp bankanúmer sem hægt er að leggja inn á. Við birtum númerið seinna en á meðan er hægt að hafa samband við leikmenn ef þið viljið hjálpa okkur.
_________________________________________________
Þór/KA/KS-ÍBV!!
9. júní
Í gær, annan í Hvítasunnu kepptum við við Þór/KA/KS á Akureyri. Veðrið var ágætt, smá úði með köflum og völlurinn mjög dapur. En þetta var hálfdapur leikur og alveg ljóst að við getum gert miklu,miklu betur. En þrjú mörk litu dagsins ljós, Olga skoraði fyrsta markið og Íris setti svo eitt fyrir hálfleik. Hálfleikstölur voru því 0-2 okkur í vil. Í seinni hálfleik sem var einnig mjög tíðindalaus kom eitt mark en það var Mhairi(afmælisbarnið) sem skoraði það mark. Núna er tíu daga pása en næsti leikur er á móti FH heima á Hásteinsvelli og auðvitað vonum við að sem flestir láti sjá sig.
Eins og staðan er í dag erum við í 3.sæti með 12 stig einu stigi á eftir KR og Val sem eru í fyrsta og öðru sæti með 13 stig, Breiðablik er svo í 4.sæti með 9 stig. Markatölurnar eru KR með 13 mörk í vil, Valur með 10 mörk í vil, ÍBV með 12 mörk í vil og Breiðablik með 3 mörk í vil.
Stöðuna, nýjustu úrslit og næstu leiki er hægt að skoða hérna.
__________________________________________________
fimmtudagur, júní 05, 2003
Heimasíða fyrir 2.fl, 3.fl og 4.fl Kvenna!!
Við erum að setja upp "blogg" fyrir þessa flokka, þar sem þær setja sjálfar inn fréttir um sína flokka. Þetta er í vinnslu en hérna getur þú skoðað síðuna.
__________________________________________________
Langt ferðalag fyrir höndum..
Á mánudaginn eigum við leik við baráttuglaða Þórsara(/KA/KS) á Akureyri kl.14:00. Ætlunin var að fara með Herjólfi á sunnudag og keyra á Akureyri en þar sem Herjólfur fer ekki á Hvítasunnudag þá þurfum við að fara með Herjólfi á laugardaginn keyra svo á Akureyri á sunnudag og við tökum æfingu þar, gistum og spilum svo daginn eftir þ.e.a.s. á mánudag. Eftir leikinn keyrum við svo beint á Bakka og tökum flug þaðan. Það er alveg ótrúlegt hvað við erum alltaf heppnar og hvað það er alltaf eitthvað svona bras þegar við eigum í hlut. En við verðum bara að hafa gaman af því... :o)
_________________________________________________
þriðjudagur, júní 03, 2003
Leikur nr.100 hjá Írisi!!
Íris sem átti hreint frábæran leik í gær var að spila sinn hundraðasta leik fyrir ÍBV. Íris átti alla skallabolta á miðjunni og var að spila mjög vel. Íris kom aftur til okkar eftir barneignarfrí og var ekki með í fyrra. Íris hefur vaxið ásmegin með hverjum leik og er greinilega farin að finna sig á miðjunni.
Við viljum óska Írisi til hamingju með hundraðasta leikinn!!!!!!!! :o)
___________________________________________________
Frábær leikur!!
ÍBV-Breiðablik 2.júní
Í gær spiluðum við við Breiðablik á Hásteinsvellinum og þetta var alveg frábær leikur, mjög spennandi. Blikastúlkur komust yfir 0-1 eftir aukaspyrnu en Margrét Lára náði að jafna rétt fyrir hálfleik(1-1). Í seinni hálfleik náðum við að setja tvö mörk og þar var Margrét Lára að verki sem var þá komin með þrennu og þá orðin sú þriðja til að setja þrennu í sumar. Blikastúlkur náðu svo að jafna (3-3) og var komin mjög mikil spenna í leikinn.( Í leiknum kom upp atvik eins og í Valsleiknum sem kostaði okkur þrjú stig þegar dæmt var á okkur fáránleg víti en ekkert var dæmt núna.) Olga og Mhairi náðu svo að skora sitthvort markið, leikurinn endaði því 5-3 ÍBV í vil. Þrátt fyrir rigningu var ótrúleg stemming á vellinum og alveg frábært að sjá allt þetta fólk þar.
Og er rétt að benda á það að þetta er í fyrsta skiptið sem við vinnum Breiðablik í Íslandsmóti. Næsti leikur er svo á móti Þór/KA/KS á Akureyri á mánudaginn n.k. en næsti heimaleikur er á móti FH þann 19.júní.
________________________________________________
mánudagur, júní 02, 2003
Mjög mikilvægur leikur í kvöld!!
Í kvöld er mjög mikilvægur leikur hjá okkur, en Breiðabliksstelpur koma í heimsókn.
Leikurinn verður á Hásteinsvellinum kl.20:00. Það lítur út fyrir að það verði fínasta veður, svo
við viljum hvetja alla til að koma og styðja okkur.
__________________________________________________
Enskur landsliðsmarkmaður í ÍBV!!
Rachel Brown, landsliðsmarkmaður Englands, hefur haft félagsskipti yfir í ÍBV. Hún kemur þó líklega ekki inní liðið þar sem Petra er búin að standa sig mjög vel og var án efa besti leikmaðurinn á vellinum á móti Val í seinustu umferð. En samkeppni er af því góða og auðvitað á líka að vera samkeppni hjá markmönnum eins og öðrum leikmönnum. Rachel kemur til með að styrkja hópinn mjög mikið.
_________________________________________________
