Olga, Íris og Margrét Lára í A-Landsliðið.
Olga, Íris og Margrét Lára eru allar í 16manna hóp A-Landsliðsins. Fyrsta æfing hópsins er n.k. sunnudag, en á fimmtudaginn 7.ágúst fljúga þær út til Rússland og spila við Rússland þann 9.ágúst, laugardag. Margrét Lára er núna ásamt Karítas úti í París á Ólympíuhátíð æskunnar með U-17, þar er Margrét Lára fyrirliði. Þær eiga að koma á laugardaginn og Margrét Lára þarf þá að fara aftur til Reykjavíkur daginn eftir.
Við viljum óska þeim öllum innilega til hamingju. Gangi ykkur vel!!!!!!
Hægt er að skoða hóp og dagskrá A-Landsliðsins á KSÍ.is
________________________________________________
fimmtudagur, júlí 31, 2003
mánudagur, júlí 21, 2003
Spjallið!!
Núna geta allir sem vilja komist inn á spjallið. Aðeins þeir sem höfðu "Username" og "Password" komust inn, og var það aðallega til þess að ekki kæmi til leiðinda inn á spjallinu eins og svo oft vill verða inn á svona síðum. En við ætlum að prófa að leyfa öllum sem vilja komast inn og athuga hvernig það gengur. Við munum henda öllum leiðinda "commentum" út. Þannig að við viljum biðja fólk að vera kurteist í skrifum og sleppa öllu skítkasti.
Til að komast inn á spjallið þarf að skrifa "a" í hvorn reit. Og smella svo á "Login".
_________________________________________________
Þá er það Úrslitaleikurinn!!
Á föstudaginn spiluðum við við Breiðablik í Kópavogi í frábæru veðri. Þetta var alveg frábær leikur, leikurinn endaði 2-6 okkur í vil. Mörkin skoruðu Olga 1, Íris 2, Lind 1, Karen 1 og Mhairi 1. Sigurinn var aldrei í hættu enda átti ÍBV leikinn og sérstaklega þann seinni. Þá er ÍBV kvenna í fyrsta skiptið komið í Bikarúrslit og ekki nóg með það heldur er þetta í fyrsta skiptið sem við vinnum Breiðablik á útivelli. Það var mikill stuðningur á vellinum, fólkið sem var á Gullmóti JB lét sig ekki vanta og svo var mikið um aðra Eyjamenn þarna líka.
Úrslitaleikurinn verður svo sunnudaginn 17. ágúst og er áætlaður tími kl.14:00. Spilað er á Laugardalsvelli á móti Val.
Við vonumst til þessa að fólk fjölmenni á völlinn enda ekki oft sem svona leikur er í boði.
Sjáumst á vellinum 17. ágúst!
Áfram ÍBV!!
Á að skella sér á Úrslitin í Bikarnum? Taktu þátt á Hliðarlínunni!
Svo er hægt að kasta á okkur kveðju í Gestabókinni okkar.
_________________________________________________
miðvikudagur, júlí 16, 2003
Undanúrslit VISA-bikarsins!!
Breiðablik-ÍBV
Það styttist óðum í bikarleikinn, en hann er eins og áður sagði á föstudaginn 18.júlí í Kópavogi. Leikurinn hefst kl.20:00. Við viljum biðja alla Eyjamenn sem verða á höfðuborgarsvæðinu að kíkja á okkur og styðja við bakið á okkur, því það er alveg ljóst að við eigum ekki að fá að fara léttu leiðina í þessu móti, fyrst KR heima, góður sigur þar. Svo Breiðablik úti, ekki óskadrátturinn en svona er þetta, ef við klárum þennan leik þá er það bara úrslitaleikurinn!! En vonandi láta sem flestir sjá sig á leiknum með ÍBV-fána, í búningum eða einhverju þess háttar. Hvernig fer leikurinn? Kíktu á Hliðarlínuna og taktu þátt.
Láttu sjá þig á vellinum,
áfram ÍBV!!
_________________________________________________
þriðjudagur, júlí 15, 2003
Þróttur/Haukar-ÍBV 0-3!!
Við spiluðum við Þrótt/Hauka á sunnudaginn á Ásvöllum og þegar leikurinn var flautaður á var svoleiðis hellidemba en það stytti þó upp eftir stutta stund. Tölurnar segja nú lítið um leikinn ef við áttum um 50 færi í leiknum og var það Þóra markmaður Þraukara sem stóð fyrir sínu og var að verja hvað eftir annað. Boltinn bara rataði ekki framhjá henni í markinu. En loksins kom mark og það var Margrét Lára sem skoraði það úr víti. Það var svo ekki fyrr en í seinni hálfleik þegar um 5-10mínútur voru eftir að leiknum að hin tvö mörkin litu dagsins ljós en þar var á ferðinni hún Olga sem skoraði eftir sendingu frá Söru. Þriðja markið var svo góður skalli frá Írisi, flott mark. En nú er næsti leikur í deildinni ekki fyrr en 30.júlí eða á miðvikudaginn fyrir þjóðhátíð. Leikurinn er hérna heima á móti Val. Það verður án efa hörkuleikur og vonumst við til að sjá sem flesta á leiknum. Næsti leikur er hins vegar á móti Breiðablik í Kópavoginum í undanúrslitum VISA-bikarsins. Leikurinn er kl.20:00 á föstudaginn.
Gullmót Breiðabliks verður þá einnig í gangi í Kópavoginum og eru þar flestir kvennaflokkar ÍBV sem við sjáum líklega á svæðinu.
Hægt er að skoða næstu leiki, nýjustu úrslit og stöðuna hérna á KSÍ.is.
_________________________________________________
föstudagur, júlí 11, 2003
Titillinn úr sögunni?
Stjarnan-ÍBV 0-0!
Í gær spiluðum við við Stjörnuna í Garðabænum. ÍBV var með boltann nær allan tímann og Stjarnan í vörn og Auður Skúladóttir sá um það að dúndra boltanum fram á við. En það er ekki nóg að halda boltanum, það er ekki það sem telur heldur mörkin og ekki litu þau dagsins ljós. Nú er Íslandsmeistaratitillinn líklega úr sögunni, en það getur allt gerst. Og við verður bara að vona að liðunum fyrir ofan okkur eigi eftir að verða á mistök. En eins og áður sagði þá getur allt gerst í þessari deild. En við verðum að halda okkar striki áfram og næsti leikur er á sunnudaginn á móti Þrótti/Haukum í bænum og við vonumst til að sjá einhver Eyjaandlit á leiknum.
En Bikarinn er enn í boði fyrir okkur og við eigum erfiðan útileik gegn Breiðablik í Kópavoginum eftir viku, eða á föstudaginn 18. júlí. Þetta er undanúrslitaleikur og þar er ekki hægt að treysta á önnur lið. Þá er bara spurning um að fara í leikinn og klára hann með stæl. Það er vonandi.
__________________________________________________
fimmtudagur, júlí 10, 2003
Voru þessi skrílslæti?
Þið getið lesið smá af greininni hérna á Eyjafréttir!! En annars er stærri grein um þetta í blaðinu sjálfu.
__________________________________________________
Leiknum frestað til fimmtudags!!
Stjarnan-ÍBV
Leikurinn sem átti að fara fram í gær, miðvikudag var settur á í dag kl.20:00. Við viljum enn og aftur minna Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu að láta sjá sig. :o)
Leikurinn við Þrótt/Hauka sem átti að fara fram á laugardag hefur verið færður fram á sunnudag.
__________________________________________________
miðvikudagur, júlí 09, 2003
Leikur í kvöld!!
Stjarnan-ÍBV
Í kvöld kl.20:00 mætum við Stjörnunni í Garðabæ, þetta er fyrsti leikur okkar í seinni umferðinni. Veðrið er mjög dapurt þessa stundina og verður kannski ekki flug. En við vonum að Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu láti sjá sig í Garðabænum og styðji okkur þar. Alltaf gott að sjá og heyra í Eyjamönnum á leikjum í bænum. Næsti leikur er svo á laugardaginn við Þrótt/Hauka í bænum. Svo er það Bikarinn á föstudeginum á eftir á móti Breiðablik í Kópavoginum en þá er Gullmót Breiðabliks og má búast við miklum fjölda á leiknum, allavega af Eyjastelpum :o)... Næsti heimaleikur er þá á móti Val miðvikudaginn fyrir þjóðhátíð.
_________________________________________________
fimmtudagur, júlí 03, 2003
Breiðablik úti í VISA-bikar!!
Í hádeginu í dag var dregið í undanúrslit VISA-bikarsins og við fengum Breiðablik á útivelli. Valur og Stjarnan eigast svo við í Garðabænum deginum áður fimmtudaginn 17.júlí, en leikur ÍBV og Breiðabliks er 18.júlí kl.20:00 á Kópavogsvelli. Þetta verður hörkuleikur en það er vonandi að leikmenn ÍBV verða í sama gír og á móti KR í seinasta leik. Hverjir fara alla leið? Kíktu á Hliðarlínuna og taktu þátt!
_________________________________________________
