ÍBV-Þór/KA/KS!!
Laugardaginn 23.ágúst
Næsti leikur ÍBV í deildinni er n.k. laugardag kl.14:00 á Hásteinsvelli.
Við viljum hvetja alla sem geta að koma á völlinn og styðja við bakið á okkur enda mikið í húfi því eins og áður sagði er enn séns á Íslandsmeistaratitli.
Ef þið getið látið þá endilega sjá ykkur á vellinum á laugardaginn og ekki væri verra ef Eyjamenn myndu mæta í hvítum peysum, bolum eða treyjum.
Vonumst til að sjá ykkur öll!!!!
Áfram ÍBV!!
______________________________________
miðvikudagur, ágúst 20, 2003
Glæsilegur sigur í kvöld!!
Í kvöld spiluðum við við Val í Íslandsmótinu og við áttum harma að hefna frá því á sunnudaginn í Bikarúrslitum. Það var svo sannarlega allt annað upp á teningnum í dag en á sunnudaginn því barátta skein í hverjum leikmanni. Leikurinn byrjaði fjörlega og strax komu góð færi. Fyrsta markið skoraði Olga, hún bætti svo öðru marki stuttu seinna og Karen bætti svo einu við fyrir hálfleik. Staðan var því 3-0 ÍBV í vil í hálfleik. Í seinni hálfleik litu tvö mörk dagsins ljós og var það Margrét Lára sem var þar að verki. Leikurinn endaði 5-0 fyrir ÍBV. Og hefndin var sæt.
Á morgun, fimmtudag fara Karen og Rachel heim til Englands og var þetta þeirra seinasti leikur í sumar. Við viljum þakka þeim kærlega fyrir sumar, þetta eru frábærir karakterar og snilldar leikmenn. Takk fyrir okkur!!!!Næsti leikur er svo á laugardaginn kl.14:00 á Hásteinsvelli á móti Þór/KA/KS. Núna eftir leikinn í kvöld er sénsinn orðinn aðeins meiri á Íslandsmeistaratitli, þannig að við þurfum á öllum stuðningi að halda. Við hvetjum alla til að mæta á laugardaginn og hvetja okkur til sigurs.
Sjáumst á vellinum...
Áfram ÍBV!!
________________________________________
þriðjudagur, ágúst 19, 2003
ÍBV-Valur!
Miðvikudag kl.19:00
Á morgun miðvikudag munu Valsstúlkur koma til Eyja. Núna er það deildarleikur og vonandi að leikurin fari betur en á sunnudaginn. Leikurinn byrjar kl.19:00 og við vonumst til að sjá sem flesta styðja við bakið á okkur því það er enn smá séns fyrir okkur í deildinni.
Leikurinn verður á sama tíma og leikur Karlalandsliðsins er sýndur í sjónvarpinu, þannig að það er um að gera að taka upp leikinn og kíkja á Hástein og horfa svo á landsleikinn á spólu :o) því þetta er seinasti leikurinn sem Rachel og Karen spila með okkur í sumar. Um að gera að kveðja þær og kíkja á völlinn!!
Í hvaða sæti lendir ÍBV í deildinni? Taktu þátt á Hliðarlínunni!!
Sjáumst á vellinum!
Áfram ÍBV!!
__________________________________________
Bikarinn fór á Hlíðarenda!
Því miður fór Bikarleikurinn ekki eins og við vildum. Leikurinn byrjaði vel því Karen Burke skoraði strax á 5.mínútu og það var alveg hreint frábær tilfinning en það stóð ekki lengi yfir því Valur jafnaði aðeins fimm mínútum síðar. Það var eins og slakað hafi verið á hjá ÍBV en áfram var þó reynt en ekkert gekk. Á 40.mínútu komst Valur yfir með glæsilegu skoti úr teig og á 44.mínútu skoruðu þær þriðja mark sitt og það seinasta í leiknum, varnarmaður ÍBV missti boltann inn fyrir og þar var Valsstúlka komin, Rachel mætti mjög utarlega en hún náði að koma boltanum fram hjá henni. Þannig að það má segja að leikurinn hafi tapast á fjórum mínútum.
Ekkert mark kom sem sagt í seinni hálfleik, en ÍBV reyndi án afláts, ekkert gekk og Valur var í rauninni bara í vörn allan seinni hálfleik. En þetta vonandi gengur bara betur næst!!!
Völlurinn var hins vegar mjög góður, veðrið frábært og fullt fullt af Eyjafólki sem við viljum þakka fyrir að koma og styðja við bakið á okkur. Það var mikið stress í leiknum, sérstaklega fyrst. En þetta fer allt saman í reynslubankann og vonandi að við fáum annan séns að ári. Þetta var samt sem áður frábær upplifun.
Svo viljum við þakka bæjarstjórn fyrir að taka á móti okkur úr Herjólfi þrátt fyrir tap enda er þetta sögulegt fyrir Kvennaknattspyrnuna í Eyjum. En svo mætum við Valstúlkum aftur á miðvikudaginn en þá er leikurinn hérna heima á Hásteinsvelli, leikurinn byrjar kl.19:00. Við vonumst til að sjá flest eyjafólkið sem var á bikarleiknum.
_____________________________________________
fimmtudagur, ágúst 14, 2003
Þá er það Bikarleikurinn!!!
Loksins getur liðið einbeitt sér alveg að bikarnum og allar löngu byrjaðar að því. Það er ótrúleg tilhlökkun í hópnum. Farið verður á föstudaginn með seinni ferð og haldið í Borgarnes þar sem gist verður á hóteli. Á laugardeginum verður svo æfing og farið á leikinn hjá körlunum á móti Fram, svo verður haldið í Borgarnes og gist aftur. Á sunnudaginn er svo komið að því, ÚRSLITALEIKURINN í VISA-bikarnum kl.14:00.
Áhorfendur og stuðningsmenn: það á að hittast á Glaumbar kl.10:00 og þar verður kaldur á tilboði og svo verða grillaðar pylsur frá SS. Það er vonandi að Eyjamenn og aðrir fjölmenni á völlinn og styðji við bakið á okkur.
Þetta er svo sannalega spennandi helgi fyrir Eyjamenn því KFS spilar á föstudaginn við Fjölni í Grafarvoginum, ÍBV karla á laugardeginum við FRAM og svo Bikarleikurinn á sunnudaginn og ekki má gleyma því að það er Menningarnótt á laugardeginum í Reykjavík.
Sunnudagur: Rúta fer frá Þorlákshöfn eftir fyrri ferð Herjólfs með fólk beint á Glaumbar, rúta fer svo frá Glaumbar beint á leikinn. Það væri alveg frábært ef allir gætu komið í hvítu á leikinn, peysu, bol, búning e.þ.h.. Varningur verður einnig til sölu á Glaumbar.
Ekki láta þig vanta skelltu þér á leikinn....
Kíktu á spjallið með því að setja "a" í hvorn reit og smella svo á LOGIN. Endilega kastið á okkur (baráttu)kveðju á Spjallinu eða í Gestabókinni Okkar!
Hver vinnur? Taktu þátt áHliðarlínunni!
_____________________________________________
Karen með þrennu!!
Breiðablik-ÍBV 1-4
Í gær spiluðum við við Breiðablik á Kópavogsvelli. Leikurinn byrjaði með marki frá Olgu sem var 200. mark hennar í efstu deild en Blikastelpur náðu að jafna leikinn. Svo var komið að Karen, og hún kláraði þennan leik með þrennu. Þetta hljóta vera góðir hlutir fyrir bikarleikinn eða við skulum rétt vona það!! Það var mjög mikilvægt að vinna þennan leik og sérstaklega með næsta leik í huganum.
Við óskum Olgu til hamingju með 200. markið sitt!! Og vonum að hún eigi eftir að bæta við í næsta leik og næstu leikjum.
En hægt er að skoða úrslit leikja, næstu leiki og stöðu á KSÍ-síðunni.
_____________________________________________
þriðjudagur, ágúst 12, 2003
Breiðablik-ÍBV
Á morgun, miðvikudag mætum við Breiðabliki í Kópavoginum á Kópavogsvelli. Leikurinn hefst kl.19:00. Þetta er mjög mikilvægur leikur og allir þeir leikir sem eftir eru, við erum enn í toppbaráttunni og verðum að gefa allt í þetta. Það er auðvitað erfitt að hætta að hugsa um Bikarleikinn en núna verður hann alveg að gleymast í smá stund og allir verða að einbeita sér að deildinni. Aðrir leikir á morgun eru: Valur-Þróttur/Haukar á Hlíðarenda, Þór/KA/KS-KR á Akureyrarvelli og FH-Stjarnan á Kapalkrika, allir leikirnir hefjast kl.19:00. Þróttur/Haukar gerðu jafntefli við Stjörnuna,1-1 í seinasta leik en FH-stelpur unnu Þór/KA/KS,1-0. Seinasti leikur sem Valur spilaði í deildinni var á móti KR og endaði sá leikur með jafntefli, 2-2. Þannig að stórleikur umferðarinnar er án efa Breiðablik-ÍBV, en einnig mun leikur FH og Stjörnunnar örugglega verða mjög spennandi.
En Breiðabliksstelpur munu örugglega koma mjög grimmar til leiks en eins og áður sagði var seinasti leikur þeirra á móti okkur undanúrslitaleikurinn. Svo það verður hörkuleikur á morgun og hvetjum við alla Eyjamenn og konur að mæta á svæðið og hvetja okkur til dáða, því það er heilmikið í húfi.
Láttu sjá þig á vellinum!! :o)
Áfram ÍBV!!!
_____________________________________________
laugardagur, ágúst 09, 2003
Íris og Olga í liðinu í dag!!
Íslenska kvennalandsliðið spilar í dag við Rússland kl15:00 að staðartíma en kl11:00 að íslenskum tíma. Olga og Íris eru í byrjunarliði landsliðsins en Margrét Lára er á bekknum. Hægt er að skoða byrjunarlið Íslands, dagskrá og fleira á KSÍ-síðunni.
_____________________________________________
fimmtudagur, ágúst 07, 2003
Styttist í Bikarleikinn!!
Það styttist óðum í Úrslitaleikinn í VISA-Bikarnum, ekki nema 10 dagar. Í könnuninni sem við tókum á síðunni ætluðu allir sem tóku þátt að fara á leikinn 88% svöruðu "Já,engin Spurning!" en 12% svöruðu "Já, en þetta eru ekki mín lið." sem er mjög gott að heyra og við viljum endilega hvetja fólk að mæta á leikinn og hvetja okkur. Þetta er í fyrsta skiptið sem ÍBV Kvenna kemst í Úrslitaleikinn sjálfan og það er alveg frábært, deildin er mjög líklega búin hjá okkur, þ.e.a.s. við eigum ekki von á titlinum þar. En þurfum auðvitað að klára þá leiki sem eftir eru, en það er einmitt næsta verk okkar í sumar það er að mæta Breiðablik á útivelli þann 13.ágúst og þær koma örugglega mjög grimmar til leiks eftir ósigur þeirra í Bikarnum á sama velli. Það verður hörkuleikur þar! Og vonandi að Eyjamenn á höfðuborgarsvæðinu komi á völlinn.
Hvernig fer Úrslitaleikurinn í VISA-Bikarnum? Taktu þátt á Hliðarlínunni!
Við viljum minna á að hægt er að komast inn á Spjallið með því að setja bókstafinn "a" í báða reiti og smella á "LOGIN", endilega látið í ykkur heyra eða kastið á okkur kveðju í Gestabókinni okkar.
ÁFRAM ÍBV!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
_______________________________________________
