ÍBV Meistaraflokkur Kvenna

mánudagur, september 29, 2003

Myndir!!

Ef einhver á myndir af einhverjum af fótboltastelpunum, þá endilega sendið okkur myndir. Getið gert það hérna á Myndasíðunni okkar.
____________________________________

Sumarlok ÍBV!!

Þann 20.september s.l. var uppskeruhátíð ÍBV haldin í Höllinni. Þarna mættu þeir sem hafa starfað fyrir ÍBV í sumar, þ.e. á þjóðhátíð, pæjumóti og öllu því sem gert var í sumar. En síðast en ekki síst var verðlaunaafhending hjá fótboltanum, hjá 2.fl og M.fl karla og kvenna. Nokkrar voru tilnefndar í hvorum flokki, en það sýnir hvað liðið allt hefur tekið miklum framförum og hvað margar voru að sýna ótrúlega góða leiki í sumar, sem vonandi verða enn fleiri á næsta sumri. Hjá okkur var Karen Burke valin best, Hanna Guðný sýndi mestu framfarir, en hún bætti sig alveg ótrúlega mikið í sumar, sérstaklega eftir komu Rachel Brown en hún kenndi henni ýmislegt í sumar. Markahæst var Olga Færseth með 19 mörk í 14 leikjum en á eftir henni var svo Margrét Lára með 18 mörk í 12 leikjum. En þær taka einmitt við silfur- og bronsskóm á KSÍ-lokahófinu sem verður n.k. laugardag á Hótel Íslandi/Broadway. Þá vonumst við einmitt til þess að eiga sem flestar í liði ársins, jafnvel þá bestu í deildinni í sumar og auðvitað þá efnilegustu. Sara fékk svo Fréttabikarinn.
Margir hafa haft orð á því að Margrét hafi ekki unnið til neinna verðlauna á hófinu. En að mínu mati er Margrét Lára ekki lengur efnileg heldur er hún bara ein af bestu á landinu í dag. Og það má í raun segja að hún sé "mitt á milli verðlauna"þ.e. efnilegust og best. En endilega segið hvað ykkur finnst um verðlaunaafhendinguna og hvað sem er á spjallinu okkar. Þið komist inn með því að skrá bókstafinn "a" í hvorn reit og smella svo á LOGIN. Svo minnum við á Gestabókina okkar, endilega kastið á okkur kveðju. Og ekki vera feimin!!
______________________________________

miðvikudagur, september 10, 2003

Takk fyrir okkur!!!!!!!!!!!!!

Við viljum þakka öllum þeim sem lögðu leið sína á völlinn í sumar til að styðja okkur og hvetja okkur áfram. Árangur ÍBV Kvenna í sumar hefur aldrei verið jafngóður og verður vonandi enn betri næsta sumar. Vonumst til að sjá ykkur öll aftur á vellinum næsta sumar og þá sem ekki kíktu í sumar...
TAKK FYRIR OKKUR!!!!!!!!
______________________________________

Allt búið!!!

Jæja, það vita líklega allir hvernig restin af leikjunum fóru, þannig að ég ætla ekkert að vera að skrifa það hér. Hægt að skoða allt á KSÍ-síðunni!
En næsta sem er í gangi hjá okkur er Lokahóf ÍBV sem haldið verður 20.september eftir leik karlaliðsins á móti ÍA heima. Svo er það KSÍ-hófið sem er 4.okt. Það er vonandi að við eigum sem flestar í liði ársins. En við eigum allavega eitt skópar, silfurskó- og bronsskódrottningarnar!!! Glæsilegt hjá þeim Olgu og Margréti, ekki fyrsti skórinn hennar Olgu en fyrsti hjá Margréti Láru og vonandi ekki þeir síðustu hjá hvorugri þeirra... :o) !!!!!!!!
Það verður lítið um skrif á næstunni enda lítið að gerast, en við munum setja inn hverjir vinna til verðlauna á komandi hófum.
_____________________________________