ÍBV Meistaraflokkur Kvenna

þriðjudagur, október 21, 2003

Margrét Lára í Hinni Hliðinni!

Margrét Lára er í Hinni Hliðinni á Fotbolti.net.
Kíktu á Hina Hliðina!
___________________________________

KSÍ-hófið!!

KSÍ-hófið var 4.október sl. Þessar fréttir koma auðvitað mjög seint inn en það er nú í lagi að koma þessu hérna inn þrátt fyrir það. Betra er seint en aldrei. Karen, Íris, Margrét Lára og Olga voru í liði ársins. Heimir var ekki valinn þjálfari ársins sem þótti frekar dapurt. Margrét Lára var einnig valin efnilegust en það kom svo sem engum á óvart enda alveg frábær leikmaður. Ásthildur var svo valin best sem við vorum ekki sáttar við, en okkur fannst Karen Burke hafa staðið sig best í sumar. Hátindur kvöldsins var svo þegar Íris Sæmundsdóttir var valin prúðasti leikmaður deildarinnar, Heimi sérstaklega til mikillar ánægju!!! Hehehehehe!!!!!!! En við óskum þeim ölum til hamingju og vonumst auðvitað til að sjá fleiri á palli næsta sumar.
____________________________________