ÍBV Meistaraflokkur Kvenna

mánudagur, janúar 26, 2004

"Comment!!"

Er búin að setja inn "comment" fyrir ykkur/okkur, þannig að ef þið hafið einhverjar spurningar eða einfaldlega viljið koma einhverju á framfæri, þá endilega nýtið ykkur þetta. Þá smellið þið bara á undirstrikaða textann undir greininni sem þið viljið tala um, bæta við eða spurja um og skrifið það sem þið viljið.
Athugið að gæta þess sem þið skrifið, við viljum ekki sjá neitt skítkast á þessari síðu. Ef einhver ljót og leiðinleg "comment" koma, þá verður þeim einfaldlega hent út.
Nýtið þetta á góðan hátt!!!! :o)
Einnig viljum við benda á spjallsíðuna, en til að komast inn á hana þarf einfaldlega að setja "a" í hvorn reit, þ.e. username og password og smella svo á login.
____________________________________________________

Tveir titlar á einni viku!!!!

Nú eru komnir tveir titlar í hús og það á einni viku. Helgina 17-18.janúar var spilað í Reykjaneshöllinni í Hraðmóti Hitaveitu Suðurnesja. Á laugardeginum var spilað við KR og ÍBV vann þann leik 3-2 og á sunnudeginum spiluðu liðin sem unnu sinn riðil á móti hvoru öðru og svo aftur liðin sem voru í öðru sæti. ÍBV vann leikinn við Stjörnuna í vítaspyrnu keppni, eftir að leikurinn sjálfur hafi endað 3-3, þannig að þá var fyrsti titillinn í höfn. Hinn leikurinn um þriðja sætið endaði 17-0 fyrir KR á móti RKV.
23-25.janúar héldum við til Akureyrar á Hraðmót Sparisjóðsins, farið var með Herjólfi föstudagsmorgun og keyrt beint til Akureyrar. Við komum um kl.19:20 á svæðið og fyrsti leikur byrjaði um kl.20.00. Þetta var leikur á móti Þór/KA/KS og leikurinn fór 7-5,mikil þreyta var í mannskapnum eftir þetta langa ferðalag en Þórsstelpurnar komust í 2-0, svo varð staðan 2-2, 2-5, 5-5, 5-7. Næsti leikur var svo laugardagsmorgun kl.09.30 á móti Þór/KA/KS 2, sem var aukaleikur ekki í þessu móti. Þennan leik unnum við 7-0, og fengu varmennirnir að spreyta sig mikið í þessum leik. Seinasti leikurinn og úrslitaleikurinn í mótinu var á móti Stjörnunni og unnum við þann leik 7-1 eftir að Stjarnan skoraði fyrsta markið 0-1. Þetta var fyrsti leikur Stjörnunnar þessa helgi en okkar þriðji og var mannskapurinn orðinn frekar þreyttur og stirður. Flest mörkin skoruðu Olga, Biddý og Margrét Lára, en við verðum að koma því á framfæri að Pála skoraði mark úr vítaspyrnu. Fyrsta mark Pálu fyrir ÍBV.
____________________________________________________

fimmtudagur, janúar 22, 2004

Akureyrarferðin.

Munum að hittast í Kringlunni á föstudag kl 12:00 - leggjum af stað til Akureyrar kl 12:30. Ég er búinn að senda ykkur öllum póst - ef þið hafið ekki fengið látið mig þá vita.
___________________________________