Portúgal fyrir valinu
Ákveðið var um helgina að farið verður til Portúgal í æfingaferð. Við munum gista á Montechoro, sama hóteli og við vorum á fyrstu árin í æfingaferðunum. Farið verður laugardaginn 20.mars og til baka 27.mars. Þá er bara að drífa sig að safna!!! Aðeins um 3 vikur til stefnu.
____________________________________________________
____________________________________________________
þriðjudagur, febrúar 24, 2004
"Comment"
Endilega skrifið í commentin, ekki vera feimin. Til að skrifa í comment, þá smelliði einfaldlega á Comment, fyrir neðan greinina sem þið viljið skrifa við, setjið inn nafn ykkar og skrifið það sem ykkur finnst. GÆTA VERÐUR VELSÆMIS Í ÖLLUM SKRIFUM!! Ef það er ekki gert er því einfaldlega hent út... :o)
____________________________________________________
Kolaportið í Týsheimilinu
Kolaportið sem við vorum með um helgina í Týsheimilinu heppnaðist mjög vel. Salurinn var fullur af dóti sem var til sölu og auðvitað á kostakjörum. Veitingar voru til sölu, þar sem kvennaráðið seldi kaffi, gos, kökur, ís og heitar vöfflur. Krakkar úr 3.bekk í Barnaskóla komu báða dagana og voru með IDOL-sýningu þar sem nokkur þeirra sungu, sum voru dómarar og aðrir stuðningsmenn. Þau stóðu sig öll frábærlega. Við viljum þakka þeim sem stóðu að þessu og þeim sem mættu á svæðið. Þetta er góð tilbreyting fyrir bæinn og voru allir þeir sem mættu mjög ánægðir.
Hægt er að fara á "Hliðarlínuna" og taka þátt í könnun um kolaportið.
Takk fyrir okkur!
____________________________________________________
Ný könnun!!
Endilega takið þátt, smellið hér.
___________________________________________________
Reykjavíkurmótið um helgina!!
Tveir leikir eru um helgina í Reykjavíkurmótinu. Báðir leikirnir eru á móti val. Fyrri leikurinn er á laugardaginn kl.17:00 í Egilshöllinni og seinni leikurinn á sunnudaginn kl.14:00, einnig í Egilshöllinni. Þetta verða líklega hörkuleikir og vonandi mun okkur ganga betur í þessum leikjum en þeim seinustu.
Endilega látið sjá ykkur!!
___________________________________________________
fimmtudagur, febrúar 12, 2004
Deildarbikar 2004!
Uppröðun leikja í Deildarbikarnum:
????.....??????.....20:30.....ÍBV-KR...............Egilshöll
sun....28.mar.....13:00.....Stjarnan-ÍBV........Fífan
fös....16.apr.......20:30.....ÍBV-Valur............Egilshöll
lau....17.apr.......14:00.....ÍBV-FH................Gervigr.Laugardal
fös....30.apr.......21:00.....Breiðabl.-ÍBV......Fífan
Hægt er að skoða allan riðilinn á KSÍ-síðunni.
____________________________________________________
miðvikudagur, febrúar 11, 2004
Kolaports-könnunin!!
Könnunin "Hvernig líst þér á Kolaports-helgina" kom vel út þar sem um 90% leist mjög vel á hugmyndina og fannst þetta frábært.
___________________________________________________
þriðjudagur, febrúar 10, 2004
Myndasíðan!!
Er aðeins búin að eiga við myndasíðuna okkar. Hún er orðin aðeins skárri. En þið getið valið albúm þar og skoðað myndirnar. Einnig er hægt að skrifa "comment" undir myndirnar, en auðvitað má ekki skrifa hvað sem er... Því gæta verður velsæmis í skrifum. Og auðvitað viljum við fá nöfn þeirra sem skrifa "commentin". Þið getið smellt hér eða einfaldlega á "Myndasíðan" hérna hægra megin.
Ef þið eigið myndir sendið þær þá endilega til mín á laradogg@hotmail.com. Svo vill ég minna á Gestabókina og Spjallið, en þið komist á Spjallið með því að setja "a" í hvorn reit og smella á LOGIN.
Hafið gaman af!!!! :o)
_____________________________________________________
Kolaportshelgi!!!
Helgina 21.-22. febrúar n.k. ætlum við að hafa Kolaport í Týsheimilinu. Hægt er að leigja bása eða beðið okkur að selja fyrir ykkur og fá prósentur....nokkrir aðilar ákveðið að selja varning þar og m.a. verður Ísjakinn með sölu á vídeóspólum, kvenfélagið Líkn með fatnað og Skóbúðin með rýmingarsölu á skóm.
Ef einhver á húsgögn, bækur, eða eitthvað annað sem hann vill ekki henda, getur hann styrkt ÍBV með því að láta stelpurnar fá hlutina til sölu á markaðinn. Einnig ef fólk vill selja hluti eins og sófasett, rúm eða aðra stærri hluti geta stelpurnar selt það fyrir viðkomandi aðila, annaðhvort hæstbjóðanda, eða þá fyrir ákveðið verð.
Kaffi og góðgæti verður selt á staðnum, auk þess sem hægt verður að kaupa alls kyns fiskmeti. Markmiðið er að gera daginn sem skemmtilegastan fyrir alla.
Þeir sem vilja koma hlutum á markaðinn eða selja hluti, þeir geta sett sig í samband við Írisi í síma 695-5753 eða Margréti Láru í síma 867-3898. Að sjálfsögðu geta stuðningsmenn ÍBV á Reykjavíkursvæðinu einnig styrkt stelpurnar, og verða þá hlutirnir sóttir heim til þeirra ef haft er samband við leikmenn. Þær verslanir sem vilja losna við hluti, eða þá vera með og selja sjálf á markaðnum, geta haft samband í áðurnefnd númer.
_____________________________________________________
mánudagur, febrúar 09, 2004
Hanna Guðný hætt!!
Hanna Guðný tilkynnti fyrir helgi að hún væri hætt. Eins og flestir vita verður Rachel ekki með í sumar, þannig að enginn markmaður var til staðar fyrir helgi. En þetta reddaðist því að 19. ára stelpa sem heitir Nanna og er úr Haukur ætlar að spila með okkur út Reykjavíkurmótið og sér svo til með framhaldið. Hún stóð sig bara nokkuð vel um helgina og greip oft mjög vel inn í leikina. Við bjóðum hana velkomna en að sama skapi sjáum við auðvitað eftir Hönnu og vonum að hún eigi eftir að hafa það gott.
____________________________________________________
Hræðilegt um helgina!!
Spilaðir voru tveir leikir um helgina í Reykjavíkurmótinu. Báðir leikirnir voru á móti KR. Einn á laugardeginum og hinn á sunnudeginum. Það er ekki mikið gott hægt að segja um þessa leiki en leikirnir enduðu 5-1 og 5-3 fyrir KR. Það var greinilega mikil þreyta í mannskapnum og vonandi að það eigi eftir að lagast. Mörk ÍBV skoruðu Olga 2, Íris 1 og Fanndís 1. Þetta var frumraun Fanndísar með meistaraflokki en hún er ekki nema 13.ára að verða 14. Við óskum henni til hamingju með þetta. Í fyrri leiknum meiddist Margrét Lára snemma og fór útaf, Erna Dögg, Lind, Karí og Sigga Ása voru ekki með en Lind og Sigga voru með í þeim seinni en hinar ekki.
____________________________________________________
miðvikudagur, febrúar 04, 2004
Reykjavíkurmótið að byrja!!
Reykjavíkurmótið er að hefjast núna um helgina, en hér fyrir neðan eru leikir ÍBV í mótinu. Látið endilega sjá ykkur :o)
lau. 07. feb. 2004 - 17:00 ÍBV - KR Egilshöll.....1-5
sun. 08. feb. 2004 - 14:00 KR - ÍBV Egilshöll.....5-3
lau. 28. feb. 2004 - 17:00 ÍBV - Valur Egilshöll
sun. 29. feb. 2004 - 14:00 Valur - ÍBV Egilshöll
lau. 13. mar. 2004 - 15:00 ÍBV - Breiðablik Egilshöll
sun. 14. mar. 2004 - 14:00 Breiðablik - ÍBV Egilshöll
____________________________________________________
þriðjudagur, febrúar 03, 2004
Bíddý og Elín Anna búnar að skrifa undir!!
Núna eru þær stöllur búnar að skrifa undir og við bjóðum þær velkomnar til okkar. Biddý er komin aftur og erum við búnar að sakna litla brjálæðingsins okkar og Elín Anna kemur til okkar úr Breiðabliki og vonandi á henni eftir að líða vel að spila í Eyjum.
____________________________________________________
