ÍBV Meistaraflokkur Kvenna

þriðjudagur, mars 30, 2004

Sigur á Stjörnunni!

Fyrsti leikur okkar í Deildarbikar endaði vel. Leikið var í Fífunni á sunnudaginn kl.13:00 daginn eftir komu okkur til Íslands. Fyrri hálfleikur var alveg frábær, gott spil og mikið að gerast, tvö sláarskot og Stjörnustelpur björguðu einu sinni á línu. Í seinni hálfleik fór þreytan eftir ferðina að koma í ljós og rassinn orðinn þungur. En leikurinn endaði 4-3 fyrir okkur, Margrét Lára með 2 mörk, Olga 1 og Biddý 1. Michelle og Whairi spiluðu með en þær eru nú fluttar til Ísland á ný.
___________________________________________________
___________________________________________________

Ferðin heppnaðist vel!!

Portúgalsferðin heppnaðist mjög vel. Veðrið var frábært allan tímann en það fór að rigna seinustu nóttina, svo það kom ekki niður á ferðinni. Við komum á hótelið um 14-15 á laugardeginum, þá var farið á æfingu og svo út að borða. Æft var tvisvar á dag og farið var í hluti sem ekki er hægt að taka á Íslandi á þessum tíma vegna aðstæðna t.d. á mölinni og margar í bænum og fleiri í eyjum o.þ.h. Maturinn var góður en við fengum morgunmat og hádegismat á hótelinu á hverjum degi svo fórum við alltaf út að borða á kvöldin. Engin meiðsli voru svo allt gekk upp sem er alveg frábært. Michelle og Whairi hittu okkur úti. Einnig komu tveir markmenn, einn frá Skotlandi og hinn frá Englandi, sem var verið að skoða. Þær hafa báðar áhuga á að koma en verið er að skoða þessi mál. Við lentum svo um 18.30 á laugardeginum á íslandi og keyrðum beint í bæinn. Á sunnudeginum var svo leikur við Stjörnuna í Deildarbikar.
___________________________________________________
___________________________________________________

föstudagur, mars 19, 2004

Út á morgun!!

Haldið verður í æfingaferðina á morgun, laugardag. Mæting 06:00 við Bakarameistarann Austurveri. ÍBV rútan verður þar. Brottför frá Keflavík 09:00. Við lendum um kl.13:00 í Faro. Við munum gista á Hotel Montechoro, hægt að skoða hér. Liðin sem verða einnig í Portúgal á sama stað eru Númi, Hvöt og Huginn. Við munum skipta tveimur völlum á milli. Brottför frá Faro þann 27.mars er um kl.18:20. Á sunnudeginum 28.mars er eins og áður sagði leikur í Deildarbikarnum á móti Stjörnunni kl.13:00 í Fífunni. Reynum að kasta inn á síðuna ef við komumst á netið úti. Annars biðjum við bara að heilsa í bili. :o)
______________________________________________________
______________________________________________________

mánudagur, mars 15, 2004

Ný Könnun!!

Ný könnun; "Í hvaða sæti endar ÍBV Kvenna í sumar?".
Kíktu á Hliðarlínuna hérna til hægri og taktu þátt.
___________________________________________________
___________________________________________________

Veistu um heimasíður???

Er búin að setja inn Linka-síðu, þar sem hægt er að setja inn linka og þess háttar. Endilega setjið inn ef þið vitið um fleiri með því að fara á Leikmenn/Lið/Eyjamenn hérna við hliðina og ADD LINK.
Takk Fyrir!! :o)
____________________________________________________
____________________________________________________

Næst á dagskrá

Á laugardaginn n.k. höldum við til Portúgals í æfingaferð og verðum í viku. Skotarnir koma til Portúgals og hitta okkur þar.
Samkvæmt KSÍ á Deildabikarleikur á móti KR að vera á föstudaginn 26.mars en honum verður breytt vegna ferðarinnar, ekki kominn tími á hann. Sunnudaginn 28.mars, þ.e. daginn eftir að við komum heim þá er leikur í Deildarbikarnum á móti Stjörnunni kl.13:00 í Fífunni.

Deildarbikarinn 2004
????.....??????.....20:30.....ÍBV-KR...............Egilshöll
sun....28.mar.....13:00.....Stjarnan-ÍBV........Fífan
fös....16.apr.......20:30.....ÍBV-Valur............Egilshöll
lau....17.apr.......14:00.....ÍBV-FH................Gervigr.Laugardal
fös....30.apr.......21:00.....Breiðabl.-ÍBV......Fífan

Hægt er að skoða allan riðilinn á KSÍ-síðunni.
_____________________________________________________
_____________________________________________________

Reykjavíkurmótið kláraðist um helgina!

Leikirnir um helgina á móti Breiðabliki voru seinustu leikirnir í Reykjavíkurmótinu í ár. Fyrri leikurinn fór 1-0 fyrir okkur, Biddý skoraði. Margrét Lára og Olga spiluðu ekki með í þeim leik þar sem þær voru að spila með landsliðinu á móti Skotum og stóðu sig frábærlega, Margrét með þrennu og Olga með flestar stoðsendingarnar, mataði yngri stelpurnar. Elín Anna meiddist í fyrri hálfleik. Pálína kom þá inná og spilaði í um 60mín, fyrsta skipti eftir meiðsli og stóð sig mjög vel. Seinni leikurinn fór ekki eins vel en við töpuðum honum 4-2, en þá voru landsliðsstelpur Blika með en Olga og Margrét komu ekki inn á hjá okkur fyrr en í seinni hálfleik. Biddý skoraði mörkin í leiknum. Þórhildur sem er á yngsta ári í 3.flokki spilaði í fyrsta skiptið með meistaraflokki og kom inn á í báðum leikjunum svo og Fanndís. Hérna fyrir neðan er endanleg staða eftir Reykjavíkurmótið. Ekki sérstakur árangur. En leikirnir koma sér vel.

1 Valur 6 5 0 1 35 : 14 21 15
2 Breiðab.6 3 0 3 16 : 17 -1 9
3 KR 6 3 0 3 16 : 21 -5 9
4 ÍBV 6 1 0 5 11 : 26 -15 3
_____________________________________________________
_____________________________________________________

laugardagur, mars 13, 2004

Spjallið lagað!

Núna er hægt að fara á spjallið án þess að "logga sig inn". Geta allir farið inn sem vilja, smellið bara á "Spjallsíðan" hér við hliðina eða hér. Látið endilega í ykkur heyra en eins og alltaf gætið velsæmis í skrifum. Takk fyrir :o)
____________________________________________________
____________________________________________________

þriðjudagur, mars 09, 2004

Leikurinn á laugardaginn!!

Leikurinn við Blikana sem er á laugardaginn er kl.11:00 í Fífunni. Landsleikurinn er svo kl.14:00 í Egilshöll.
____________________________________________________
____________________________________________________

miðvikudagur, mars 03, 2004

Breytingar á leikjum vegna Landsleiks og Portúgalsferðar!!

Breyta þurfti leik okkar á móti Breiðabliki í Reykjavíkurmótinu vegna landsleiks, Ísland-Skotland, sem verður 13.mars í Egilshöllinni(Michelle og félagar). Fyrri leikurinn sem átti að vera kl.14:00 á laugardag færist og spilast laugardagsmorguninn og verður sennilega á einhverju úti-gerfigrasi. Sunnudagsleikurinn stendur.
Einn leikur er á meðan við erum í æfingaferð á Portúgal það er KR leikurinn í deildarbikar, sem átti að vera 26 mars. Hann frestast og verður settur á seinna, ekki er kominn tími á hann. Svo er leikur daginn eftir að við komum heim, sunnudaginn 28. mars kl.13:00 á móti Stjörnunni í Fífunni.
____________________________________________________
____________________________________________________

þriðjudagur, mars 02, 2004

Önnur döpur helgi!!

Um helgina spiluðum við í Reykjavíkurmótinu á móti Val, bæði lau og sun. Fyrri leikurinn fór 4-2 seinni 8-2, Valur vann báða leikina. Einar Hlöðver og Bjarni Geir sáu um liðið um helgina þar sem Heimir var fjarri góðu gamni í Eyjum, veikur. En við getum ekki annað en vonað að þetta fari að ganga upp hjá okkur. En þess má geta að það vantar aðeins einn leikmann í Valsliðið fyrir átökin í sumar. En það er engin afsökun fyrir því að tapa svona stórt, sem er ömurlegt.
______________________________________________________
______________________________________________________