ÍBV Meistaraflokkur Kvenna

fimmtudagur, apríl 29, 2004

*****Árskort*****

Nú er að hefjast sala á Árskortum á heimaleiki ÍBV Kvenna í sumar. Leikmenn eru með kortin til sölu og verðið er aðeins 5000.- krónur, eins og í fyrra. Í fyrra var alltaf að bætast í hópinn á vellinum og gaman að sjá að svona mikið fólk var farið að leggja leið sína á völlinn. Það er alveg á hreinu að þetta á eftir að vera skemmtilegt og spennandi fótboltasumar hvort sem það er í kvenna- eða karlaboltanum svo það er um að gera að skella sér á árskort hjá okkur stelpunum. Sjáumst hress á vellinum (með árskort.... :o) ...)
____________________________________________________
____________________________________________________

Styttist í Íslandsmót!!

Það styttist og styttist í Íslandsmótið 2004. Í dag eru aðeins 19 dagar í fyrsta leik. Fyrsti leikurinn er ÍBV-Breiðablik, sem verður á Hásteinsvelli kl.20:00. Hérna er fyrsta umferð Íslandsmótsins:

Þrið.....18. maí..........20:00.........ÍBV-Breiðablik..........Hásteinsvöllur
Fim.....20. maí..........16:00..........FH-Valur.................Kaplakrikavöllur
Fim.....20. maí..........16:00..........KR-Fjölnir...............KR-völlur
Fim.....20. maí..........16:00..........Stjarnan-Þór/KA/KS.....Stjö.völlur

Endilega spáið hvernig þessir leikir fara, hérna fyrir neðan í "comment" ef þið viljið. Og ekki vera feimin að kvitta í Gestabókina.
_____________________________________________________
_____________________________________________________

Úrslitakeppnin!!

Komið er á hreint hvaða lið mætast í undanúrslitum Deildarbikarsins 2004. Einn leikur er þó eftir, ÍBV-Breiðablik, sem er á morgun, föstudag, kl.21:00 í Fífunni. Valur-Stjarnan fór 6-1 fyrir Val og KR-Breiðablik fór 0-4 fyrir Breiðablik. Undanúrslitaleikirnir eru báðir á n.k. sunnudag í Fífunni.

13:00..........Valur - KR
15:00..........Breiðablik - ÍBV


Gæti verið að Breiðablik-ÍBV verði á þriðjudaginn, kemur í ljós seinna.
_____________________________________________________
_____________________________________________________

Karen í ÍBV!!

Karen Burke er búin að fá félagsskipti yfir í ÍBV. Frábært að það sé komið í gegn, enda frábær knattspyrnukona þar á ferð. Hún kemur í byrjum maí til Eyja. Leikmannahópurinn er því að verða til:
Biddý, Claire, Danielle, Elena, Elín Anna, Erna Dögg, Íris, Karen, Lára Dögg, Margrét Lára, María, Mhairi, Michelle, Olga, Pála, Rakel Rut, Sara, Sigga Ása og Thelma.
____________________________________________________
____________________________________________________

mánudagur, apríl 26, 2004

Úrslitakeppnin

Sunnudagur.....02. maí......Kl13:00.....A1 - A4..........Fífan
Sunnudagur.....02. maí......Kl15:00.....A2 - A3..........Fífan
Sunnudagur.....09. maí......Kl20:00.....Úrslitaleikur.....Egilshöll
___________________________________________________
___________________________________________________

Næsti leikur á föstudaginn!!

Næsti leikur er á föstudaginn 30.apríl á móti Breiðabliki. Leikurinn verður í Fífunni kl.21:00. Þetta er seinasti leikurinn hjá okkur í Deildarbikarnum svo eru það úrslitakeppnin. Á þriðjudaginn 27.apríl eru hinir tveir leikirnir Valur-Stjarnan á Leiknisvellinum kl.18:00 og KR-Breiðablik á Leiknisvellinum kl.20:00.
Staðan fyrir þessa leiki:

Lið Leikir Nettó Stig
1 Valur..........4..........12..........10
2 ÍBV............4............3............9
3 KR.............4...........-3...........6
4 Breiðablik....3............6...........5
5 Stjarnan.....4...........-1...........4
6 FH..............5........-17............0
____________________________________________________
____________________________________________________

Markaleikur

Í gær, sunnudag, var spilað á móti KR í Deildarbikar. Þessi leikur átti að fara fram á laugardaginn í Eyjum á grasi, en var dregið til baka á síðustu stundu sökum rigningar. Svo við héldum til Reykjavíkur á sunnudeginum og spiluðum á Leiknisvellinum. Staðan var 2-1 fyrir ÍBV í hálfleik og áttum við miklu meira í leiknum og voru leikmenn ákveðnir að bæta við, sem tókst. Leikurinn endaði 7-3 fyrir ÍBV. Biddý skoraði 5 mörk, Elín Anna 1 mark, Mhairi 1 mark, eitt sjálfsmark sem Embla(KR) skoraði en Biddý átti reyndar í. Biddý, Íris og Michelle áttu mjög góðan leik. Margrét Lára og Sara voru ekki með vegna Landsleikja.
Einn leikur er eftir í Deildarbikarnum hjá okkur en hann er á móti Breiðablik, Valur á Stjörnuna eftir og KR á Breiðablik eftir. FH er búið að spila alla sína leiki.
_____________________________________________________
_____________________________________________________

laugardagur, apríl 24, 2004

KR leikurinn!!

Leikurinn við KR verður á morgun, sunnudag, kl.14:00 á Leiknisvelli.
________________________________________________
________________________________________________

mánudagur, apríl 19, 2004

Tap og sigur!!

Tveir leikur voru s.l. helgi. Fyrri leikurinn var á föstudaginn á móti Val og sá leikur fór 3-0 fyrir Val. Fengum við dágóðan slatta af góðum færum sem ekki tókst að nýta. Seinni leikurinn var á móti FH og fór hann 2-1 fyrir okkur. Það verður að segjast eins og er að það gekk heldur illa um helgina að skora og virtist vera einhver stífla hjá liðinu. En það verður að lagast fyrir næsta leik. Elín Anna og Olga skoruðu mörkin.
Margrét Lára og Sara voru ekki með í leiknum gegn FH vegna landsleikja.
___________________________________________________
___________________________________________________

fimmtudagur, apríl 01, 2004

100% HITT með Helgu Brögu!!!!!!!

Miðvikudaginn 7.apríl n.k. mætir Helga Braga hress og kát með uppistand sitt í Höllina. Miðaverð er 2300.-kr. Þetta er skemmtileg tilraun Knattspyrnuráðs Kvenna að safna inn pening og góð tilbreyting fyrir eyjamenn að skella sér að sjá þennan snilling, en eins og flestir við þá er allt sem hún gerir fyndið!!

***
Uppistandið „Hitt“ kennir þér að lækka lostann og hjálpar þér
að öðlast fullkomna kynferðislega ófullnægju.
Þetta er tilvalið námskeið fyrir alla þá sem vilja
vinna meira og gera minna af „hinu.“

„Hitt“ er íslensk uppfærsla á uppistandi austurríska
atferlisfræðingsins Bernhards Ludwigs um hvernig á að
öðlast fullkomna kynferðislegu ófullnægju.
Aðrar sýningar Ludwigs kenna fólki m.a. að fá
hjartaáfall og að verða virkilega feitt.
Blanda hans af staðreyndum og uppistandi
hefur slegið í gegn um allan heim og núna
er komið að því að kenna Íslendingum að
gera „hitt“ og gera það betur.

Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir nálgast þetta
viðkvæma mál af svo hárfínni og vísindalegri nákvæmni
að áhorfendur vita hreinlega ekki hvort þeir eiga að hlæja,
gráta, skrifa lesendabréf eða bara drífa sig heim í rúmið.

„Hitt“ er fullkomlega örugg lækning við húmorsleysi,
tepruskap og fjölmörgum öðrum andlegum kynsjúkdómum.


1. Allt sem þú vildir vita
2. Allt sem þú vissir ekki að þú vildir vita
3. Hlutir sem þú vildir að þú hefðir aldrei heyrt

Tekið af síðu 100% HITT...
***

Þetta er eitthvað sem enginn má missa af, svo sláið til, kíkið í Höllina á frábæra skemmtun og styrkið Knattspyrnuráð Kvenna um leið.

Miðar á uppistandið eru til sölu í Tölvun og í Axel Ó.

Vonumst til að sjá ykkur flest!!
___________________________________________________
___________________________________________________

Kominn annar nýr tími á KR-leikinn!!

Leikurinn í Deildarbikarnum á móti KR sem átti að vera s.l. föstudag verður þann 24. apríl á grasi úti í Eyjum(Paradísareyjunni..). Þetta verður örugglega hörkuleikur og við biðjum eyjamenn að mæta á völlinn og hvetja okkur. Næsti leikur er því föstudaginn 16.apríl kl.20:30 í Egilshöll við Val. Hægt er að skoða alla leiki og úrslit á síðu KSÍ.
___________________________________________________
___________________________________________________

Brúðkaupsleyfi leikmanna

Frestur til að sækja um brúðkaupsleyfi leikmanna í Landsbankadeildum karla og kvenna á komandi leiktímabili rennur út í dag, fimmtudag. Umsóknareyðublað má nálgast með því að smella hér að neðan, en einnig má nálgast það á skrifstofu KSÍ til kl. 17:00 í dag. Umsóknir sem koma of seint verða ekki afgreiddar og ekki tekið tillit til þeirra við lokaniðurröðun leikja 2004.

Umsókn um brúðkaupsleyfi er hægt að finna á síðu KSÍ. (Tekið af síðu KSÍ)
****Stelpur, bara svo þetta sé á hreinu, hehehehehe!HVAÐ!****
___________________________________________________
___________________________________________________