ÍBV Meistaraflokkur Kvenna

mánudagur, maí 31, 2004

Eyjastelpurnar skoruðu mörkin og Elín Anna í hópinn!!

Á laugardaginn s.l. vann A-landslið kvenna Ungverja 5-0 í undankeppni EM 2005. Leikurinn var spilaður í Székesfehérvár í Ungverjalandi. Olga skoraði þrennu í leiknum og Margrét Lára gerði hin mörkin tvö. Sigurinn gefur íslenska liðinu góða möguleika í keppninni við Rússland og Frakkland um efstu sæti riðilsins. Næsti leikur liðsins er við Frakka á miðvikudaginn 2.júní kl.17:00 á Laugardalsvelli. Elín Anna hefur verið valin í hópinn en Íris Andrésardóttir, leikmaður Vals fékk sitt annað gula spjald í keppninni og er því í banni.
Við óskum Olgu og Margréti innilega til hamingju með mörkin og leikinn og óskum Elínu til hamingju með að vera komin í hópinn.
Gangi ykkur vel á miðvikudaginn!!!
_____________________________________
_____________________________________

þriðjudagur, maí 25, 2004

Markatalan 16-1!!


Í gær fór fram leikur hjá okkur í 2.umferð Íslandsmótsins. Þetta var enn einn markaleikurinn en leikurinn endaði 8-0, staðan var 5-0 í hálfleik. mörkin skoruðu Margrét Lára 3 og er því komin með 7 mörk eftir tvo leiki, Olga 2, Íris 1 en hún tók breik fyrir okkur eftir að hún skoraði, Karen 1 og Elín Anna 1. Tvær breytingar voru á liðinu en það voru þær að Erna Dögg og Sara komu inn fyrir Mary og Elenu. Liðið lék allt nokkuð vel og kom mjög gott og fallegt spil á köflum en einnig áttum við dauðfæri sem ekki náðist að nýta.
____________________________________________
____________________________________________

mánudagur, maí 24, 2004

Allir á völlinn í kvöld!!!


Þá er komið að okkar næsta leik. Leikurinn er kl.20:00 í kvöld, mánudag, á Hásteinsvelli á móti FH. Þetta er fyrsti leikur FH í mótinu. Næsti heimaleikur okkar er svo ekki fyrr en 14.júní svo það er um að gera að skella sér á völlinn. Vonumst til að sjá ykkur sem flest :o) !!
_____________________________________________
_____________________________________________

Úrslit gærdagsins!

Þrír leikir í 2.umferð fóru fram í gær, sunnudag. Stórleikur umferðarinnar er án efa Valur-KR en úrslitin voru þessi:

Valur-KR.....3-0
Breiðablik-Þór/KA/KS.....3-2
Fjölnir-Stjarnan.....1-1

___________________________________________
___________________________________________

föstudagur, maí 21, 2004

Úrslit og næsta umferð!

Tveir leikir fóru fram í gær, fimmtudag.
KR-Fjölnir fór 3-1 og Stjarnan-Þór/KA/KS fór 1-1. Leik FH og Vals var frestað til 9.júní vegna fráfalls Þóris Jónssonar.
Næsta sunnudag hefst önnur umferð með þremur leikjum:
Valur-KR.....Hlíðarendi
Breiðablik-Þór/KA/KS.....Kópavogsvöllur
Fjölnir-Stjarnan.....Fjölnisvöllur

Svo er eins og áður sagði leikur okkar á mánudeginum á móti FH hérna heima kl.20:00.

Eftir þessa leiki kemur svo landsliðspása og eru næstu leikir ekki fyrr en 6.júní.
Hægt er að skoða nýjustu úrslit, næstu leiki og stöðu á síðu KSÍ.
___________________________________________
___________________________________________

miðvikudagur, maí 19, 2004

Næsti leikur á mánudaginn...

Næsti leikur okkar í deildinni er mánudaginn 24.maí á Hásteinsvelli kl.20:00 á móti FH. Hægt er að skoða leikina og úrslit hérna við hliðina á "Landsbankadeildin".
____________________________________________
____________________________________________

Sigur í fyrsta leik!


Það mætti dágóður slatti af fólki á völlinn í gær. Fyrsti leikur Íslandsmótsins. Staðan var 3-0 í hálfleik og var það Margrét Lára sem skoraði þau öll. Í seinni hálfleik bættust 6 mörk við, 1 mark frá Breiðabliksstúlkum en hin 5 frá ÍBV, Elín(skalli),Margrét Lára(eftir fyrirgjöf), Karen(skot), Olga(hjólari) og Mhairi(fylgdi eftir).
Ekki leiðinleg útkoma í fyrsta leik, 8-1. Fyrsta markið kom seint eða þegar um 30 mín voru liðnar og markið var ekki af verri endanum, Margrét Lára með skot, sláin inn. Trópístelpan aldeilis að gera góða hluti, 4 mörk í fyrsta leik. Hinir leikirnir í fyrstu umferð verða á morgun eins og áður sagði.
__________________________________________
__________________________________________

þriðjudagur, maí 18, 2004

KSÍ úthlutar 60 sparkvöllum, einn til Eyja!!

KSÍ hefur ákveðið að úthluta 60 sparkvöllum til sveitarfélaga víðs vegar um landið eftir að hafa fengið tilboð í gervigras á vellina, en það verður hlutverk KSÍ að útvega og leggja fyrsta flokks gervigras á vellina sveitarfélögum að kostnaðarlausu.

Alls bárust umsóknir um 105 velli frá 59 sveitarfélögum. Með því að úthluta 60 völlum hefur KSÍ tekist að ná til nær allra stærri þéttbýliskjarna á landinu. Það er von KSÍ að hægt verði að úthluta fleiri völlum, en það veltur á samningi við framleiðanda og auknu fjármagni til átaksins.

Úthlutun KSÍ er sem hér greinir:
Sveitarfélag og Fjöldi valla
Akranes 1
Akureyri 2
Bessastaðahreppur 1
Blönduós 1
Bolungarvík 1
Borgarnes 1
Búðardalur 1
Dalvík 1
Djúpivogur 1
Egilsstaðir 1
Eskifjörður 1
Fáskrúðsfjörður 1
Flúðir 1
Garðabær 1
Garður 1
Grenivík 1
Grindavík 1
Grundarfjörður 1
Hafnarfjörður 3
Hella 1
Hofsós 1
Hornafjörður 1
Hólmavík 1
Húsavík 1
Hvammstangi 1
Hveragerði 1
Hvolsvöllur 1
Ísafjörður 1
Kirkjubæjarklaustur 1
Kópavogur 3
Mosfellsbær 1
Neskaupsstaður 1
Ólafsfjörður 1
Ólafsvík 1
Patreksfjörður 1
Reykjanesbær 1
Reykjavík 8
Selfoss 1
Seltjarnarnes 1
Seyðisfjörður 1
Siglufjörður 1
Skagaströnd 1
Stykkishólmur 1
Vestmannaeyjar 1
Vík 1
Vogar 1
Vopnafjörður 1
Þórshöfn 1

***Tekið af síðu KSÍ!!
____________________________________________
____________________________________________

mánudagur, maí 17, 2004

Fyrsti leikurinn á morgun!!!!


jæja, þá er komið að fyrsta leiknum í Íslandsmótinu 2004. Leikurinn verður á morgun, þriðjudag kl.20:00 á Hásteinsvelli og eins og áður sagði ætla Blikastúlkur að heimsækja okkur í þetta sinn. Seinast þegar við mættum Blikastúlkum var það í undanúrslitum Deildarbikarsins í sannkölluðum markaleik en 11 mörk litu þá dagsins ljós og endaði 6-5 fyrir okkur eftir framlengingu. Svo þetta á eftir að verða hörkuleikur á morgun og hvetjum við alla sem geta að láta sjá sig á vellinum og styðja við bakið á okkur. Við erum enn með árskort til sölu, hægt er að nálgast þau hjá leikmönnum og knattspyrnuráði. Alls eru 7 heimaleikir og árskortið kostar 5000.-kr (það kostar 1000.- á hvern leik).
_______________________________________________
_______________________________________________

miðvikudagur, maí 12, 2004

Nokkrir dagar í fyrsta leik!

Það eru aðeins nokkrir dagar í Íslandsmótið 2004. Í dag eru 6 dagar í fyrsta leik. Fyrsti leikurinn er ÍBV-Breiðablik, sem verður á Hásteinsvelli kl.20:00. Hérna er fyrsta umferð Íslandsmótsins:

Þrið.18. maí....20:00....ÍBV-Breiðablik.......Hásteinsvöllur
Fim.20. maí.......16:00.......FH-Valur............Kaplakrikavöllur
Fim.20. maí.......16:00.......KR-Fjölnir..........KR-völlur
Fim.20. maí.......16:00.......Stjarnan-Þór/KA/KS...Stjö.völlur

Endilega spáið hvernig þessir leikir fara, hérna fyrir neðan í "comment" eða á spjallinu..
_____________________________________________
_____________________________________________

*****Marki fagnað*****

Það er mikið tilfinningamál fyrir leikmenn og stuðningsmenn þegar marki er fagnað og eykur oft skemmtanagildi leiksins. Í áhersluatriðum dómaranefndar kemur engu að síður fram að áminna beri fyrir óíþróttamannslega framkomu þá leikmenn sem:

- fagna marki með því að fara úr keppnispeysu (nýtt frá FIFA 2004), *

- fagna marki með því að lyfta keppnispeysu sinni til að láta slagorð eða auglýsingar sjást,

- fagna marki með ögrandi hætti eða með því að egna mótherja og hæðast að þeim.

* Breytingin tekur gildi hér á landi við upphaf Íslandmóts 15. maí. Breytingin tekur þó ekki gildi annars staðar fyrr en eftir lokakeppni EM í Portúgal, þannig að mögulegt er að fólk sjái menn spjaldaða fyrir fyrir að fara úr treyjunni hér á landi, en ekki á EM í Portúgal.

*****Áhersluatriði dómaranefndar KSÍ 2004*****

Áhersluatriði dómaranefndar KSÍ 2004 eru svipuð og undanfarin þrjú ár og byggjast m.a. á eftirfarandi atriðum:

Knattspyrna er íþrótt, þar sem hörð og heiðarleg barátta leikmanna um knöttinn gefur leiknum augljóst gildi, en skylda dómara er að vernda leikmenn fyrir alvarlega grófum og hættulegum leikbrotum.

KSÍ leggur mikla áherslu á heiðarleika og háttvísi í íslenskri knattspyrnu og skulu dómarar ekki líða óheiðarlegan leik eða óíþróttamannslega framkomu. Sérstaklega skal þess gætt að leikmenn séu ekki með uppgerð eða leikaraskap til að öðlast ávinning á kostnað mótherja.


Tekið af síðu KSÍ.
_____________________________________________
_____________________________________________

Spáð titlinum!!

Búið er að kynna spánna sem kemur fyrir hvert sumar sem er spá fyrirliða og forráðamanna liðanna í efstu deild karla og kvenna fyrir sumarið. ÍBV Kvenna er spáð Íslandsmeistaratitli með 174 stig en Valur er spáð öðru sæti með 167 stig.

Svona er spáin í Kvennadeildinni:

1. ÍBV
2. Valur
3. KR
4. Breiðablik
5. Stjarnan
6. FH
7. Þór/KA/KS
8. Fjölnir
_____________________________________________
_____________________________________________

DEILDARBIKARMEISTARAR!!!

S.l. sunnudag unnum við úrslitaleikinn í Deildarbikarnum. Leikurinn endaði 3-1 ÍBV í vil. Valsstúlkur komust yfir 0-1 um miðjan fyrri hálfleik, en Margrét Lára skoraði beint úr aukaspyrnu og svo Mhairi eftir góða sókn. Staðan var 2-1 í hálfleik. Eitt mark leit dagsins ljós í seinni hálfleik en þar Karen að verki eftir sendingu frá Olgu. Þetta var fyrsti leikurinn sem Valsstelpur eru búnar að tapa í vetur en þær urðu bæði Reykjavíkurmeistarar og Meistarar meistaranna.
Þetta er mikið afrek fyrir ÍBV, því þetta er fyrsti "stóri" titillinn sem fer til Eyja. (Tveir af innimótum í vetur)
Þetta er svo aftur fyrsti titillinn sem er í boði af þremur á þessu tímabili. Svo það er bara að vona að allt eigi eftir að ganga vel í sumar og að sem flestir eigi eftir að láta sjá sig á vellinum í sumar að styðja við bakið á okkur... :o)
____________________________________________
____________________________________________

laugardagur, maí 08, 2004

ÚRSLITALEIKURINN Á MORGUN!!!!!



Úrslitaleikur Deildarbikarsins fer fram á morgun, sunnudag. Leikurinn verður í Egilshöllinni og byrjar kl.20:00. Þetta er í fyrsta skiptið sem liðið kemst í sjálfan úrslitaleikinn svo þetta er mjög spennandi. Valsstelpur unnu Reykjavíkurmótið og hafa unnið alla sína leiki í vetur. Gengi okkar var frekar dapurt í Reykjavíkurmótinu en eins og áður sagði er þetta í fyrsta skiptið sem við komumst í úrslit svo leikirnir fyrir Deildarbikarinn hafa greinilega skilað sér. Karen kemur fyrir leikinn en Biddý verður ekki með. Við hvetjum alla sem geta að mæta á völlinn og hvetja stelpurnar áfram!! :o)
Sjáumst á vellinum!!

Áfram ÍBV!!
__________________________________________
__________________________________________

Enn bætist í hópinn!!


Tvær bandarískar stelpur koma í sumar að spila með ÍBV. Þær munu skipta á sig tímabilinu vegna anna. Þær koma frá liðinu Philadephia Chargers. Þær heita Rachel Kruze og Mary McVaigh, þær spila miðju og vörn. er varnarmaður. Þetta á greinilega eftir að verða skemmtilegt og spennandi fótboltasumar í Eyjum og við bíðum allar spenntar.
Við viljum minna á árskortin sem eru til sölu hjá leikmönnum, endilega skellið ykkur á kort. :o)
____________________________________________
____________________________________________

miðvikudagur, maí 05, 2004

Leikmenn ÍBV!!

Búin að vera að dunda við að laga Leikmenn ÍBV - síðuna endilega kíkiði á hana með því að smella hér. Ef þið vitið um myndir af einhverri af stelpunum á netinu endilega hendið línu í Commentið fyrir neðan greinina eða í Spjallið... Takk Takk :o)
(Reyni svo að fara að komast í að setja inn fleiri myndir og mismæli (nóg til af þeim)...)
Ætla að biðja fólk um að kvitta endilega í Gestabókina eða Spjallið!!
_____________________________________________
_____________________________________________

Olga og Margrét til Englands!

Elín Anna var ekki í hópnum að þessu sinni en það er aldrei að vita í næstu leikjum, vonandi! En eins og áður sagði er 16 manna hópur til Englands en 18manna í hina tvo. Margrét Lára og Olga fara út með landsliðinu 12.maí og koma til baka 15.maí. Leikurinn er 14.maí kl.19:30. Gangi ykkur vel!!!!!
______________________________________________
______________________________________________

Biddý með í sumar!!


Biddý meiddist á æfingu í seinustu viku og var ekki vitað hversu alvarleg meiðslin voru. Jafnvel var búist við að þetta væru liðböndin og að hún yrði ekki meira með á þessu tímabili en hún fór og lét skoða þetta á mánudaginn og kom í ljós að hún er illa tognuð og verður með í sumar, hún er nú laus við hækjurnar og við vonumst til þess að hún verði tilbúin fyrir fyrsta leik í Íslandsmótinu sem er þann 18.maí á móti Breiðabliki í Eyjum.
_________________________________________________
_________________________________________________

þriðjudagur, maí 04, 2004

Enn einn markaleikurinn og framlenging!!


Á sunnudaginn s.l. spiluðum við við Breiðablik í undanúrslitum Deildarbikarsins og unnum 6-5 eftir framlengingu. Við náðum að komast í 4-2, 5-2, svo náðu Blikastelpur að jafna með vítaspyrnu (gefins) rétt fyrir lok venjulegs leiktíma. Mörkin skoruðu Margrét Lára 4, Elín Anna 1. Í framlengingunni skoraði Olga sigurmarkið. Sömu leikmenn vantaði og í seinasta leik, vegna sömu ástæðna nema að Íris kom aftur inn. Valur vann KR 4-0 og mætum við því Val í Úrslitaleiknum n.k. sunnudag kl.20:00 í Egilshöllinni (að öllu óbreyttu). Þetta er í fyrsta skipti í sögu ÍBV að við komumst í Úrslit.
En þetta er alveg glataður tími, sérstaklega fyrir Eyjastúlkur því við hreinlega komumst ekki aftur til baka á sunnudaginn því leikurinn er búinn um kl.22:00 ef ekki kemur til framlengingar. Margar eru í prófum á mánudeginum svo eru auðvitað margar að vinna.
_______________________________________________
_______________________________________________

laugardagur, maí 01, 2004

Úrslitakeppnin byrjar á morgun!!

Undanúrslitaleikirnir eru báðir á morgun, sunnudag í Fífunni.

13:00..........Valur - KR
15:00..........Breiðablik - ÍBV


Hvetjum alla til að koma á völlinn!! :o)
(Ekki var hægt að breyta leik ÍBV og Breiðabliks, því það fannst ekki völlur.)
Úrslitaleikurinn er svo sunnudaginn 9.maí kl.20:00 í Egilshöll.
_________________________________________________
_________________________________________________

Þrjár í undirbúningshóp A-landsliðsins

Olga, Margrét Lára og Elín Anna eru allar í undirbúningshóp A-landsliðsins fyrir leikina gegn Englandi, Ungverjalandi og Frakkalandi í vor. Sextán leikmenn verða valdir í hópinn sem fer til Englands og verður hann tilkynntur í næstu viku. 18 leikmenn taka þátt í leikjunum gegn Ungverjalandi og Frakklandi.
Til hamingju stelpur!!
_________________________________________________
_________________________________________________

Annar markaleikur!

Í gær, föstudag spiluðum við við Breiðablik, þetta var seinasti leikurinn í Deildarbikarnum fyrir Úrslitakeppni. Leikurinn endaði 7-4 fyrir okkur. Mörkin skoruðu Margrét Lára 4, Sara 2 og Olga 1. Nokkra leikmenn vantaði í liðið Biddý (meidd), Íris (meidd), Michelle (úti með skoska landsliðinu) og Claire (úti með skoska landsliðinu). Nataly Gingzul sem spilaði sem varamarkamaður hjá okkur fyrir tveimur árum var í markinu hjá okkur í staðinn fyrir Claire og við þökkum henni fyrir það. Alltaf gaman að sjá gamla takta. :o)
Valur endaði í fyrsta sæti efri deildar með 13 stig en ÍBV í 2 sæti með 12 stig. Úrslitakeppnin hefst svo á sunnudaginn.
__________________________________________________
__________________________________________________