ÍBV Meistaraflokkur Kvenna

miðvikudagur, júní 30, 2004

Mismæli!!!

Jæja, það er kominn tími á að það bætist í mismælasafnið okkar. Ég ætla að biðja þau sem muna eitthvað skemmtilegt sem ÍBV-stelpurnar, þjálfari eða gaurarnir í ráðinu hafa sagt eða gert að senda mér það á e-mail á larako@hi.is eða koma því einhvern veginn til mín nema að setja það ekki í commentið hérna fyrir neðan.
___________________________________________
___________________________________________

Biddý með 100 leiki!




Biddý spilaði í gær sinn 100.leik.
Til hamingju með það, Biddý!!!! (",)






____________________________________________
____________________________________________

Sigur á Fjölni!

Leikurinn endaði 6-0 og staðan var 6-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik spiluðum við á móti vindi og Fjölnisstúlkur pökkuðu í vörn sem er ansi skrítin leikaðferð með allan þennan vind með sér og ekki skrítið að lið séu búin að skora lítið á móti þeim. Það var því lítið hægt að gera þó svo að það litu nokkur færi dagsins ljós. Elín Anna átti mjög góðan leik og skoraði sína aðra þrennu á mótinu, Olga skoraði 2 mörk og Karen 1 beint úr horni.
Markatalan er því orðin 35-3. Margrét Lára með 10 mörk. Elín Anna og Olga eru með 7 mörk hvor.

**Næsti leikur er upp á líf og dauða en þá mætum við á Hlíðarenda og spilum við Val. Leikurinn er á mánudaginn kl.20:00.
_____________________________________________
_____________________________________________

þriðjudagur, júní 29, 2004

Fjölnir í kvöld!


Í kvöld mæta Fjölnisstelpur til Eyja. Fjölnisstelpur eru í næstneðsta sæti með 1.stig en þær eru búnar að ná að stríða öllum liðunum sem þær eru búnar að spila við svo það má búast við hörkuleik og þær eiga ekkert eftir að gefa eftir. Leikurinn er á Hásteinsvelli kl.20:00. Veðrið er ekki spennandi eins og er en við verðum bara að vona að það lagist.
Þetta er ótrúlega mikilvægur leikur fyrir ÍBV og ekki veitir af að fá 12manninn með svo við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Allir á völlinn!
Áfram ÍBV!!
____________________________________________
____________________________________________

laugardagur, júní 26, 2004

Úrslit gærdagsins!

Valur vann Breiðablik 1-2 í 6.umferð Landsbankadeildar og Fjölnir vann FH 2-1 í 16.liða úrslitum VISA-bikarsins.
___________________________________________
___________________________________________

föstudagur, júní 25, 2004

Landsbankadeildin!!

Fyrsti leikur 6.umferð Landsbankadeildar fer fram í kvöld. Þetta verður vonandi hörkuleikur en Breiðablik tekur á móti Valsstúlkum sem eru búnar að vinna alla leiki sína á mótinu. Við verðum að vona að Breiðabliksstúlkur taki vel á þeim og nái af þeim stigi. Leikurinn er kl.20:00 á Kópavogsvelli.

Næstu leikir í deildinni eru svo á þriðjudaginn 29.júní:
ÍBV-Fjölnir kl.20:00 á Hásteinsvelli
KR-Stjarnan kl20:00 á KR-velli
____________________________________________
____________________________________________

VISA-bikarinn!

Einn leikur er eftir í 16 liða úrslitum VISA-bikarsins. Hann fer fram í kvöld, föstudag en þá mætast Fjölnir og FH á Fjölnisvelli. Leikurinn hefst kl.20:00.
____________________________________________
____________________________________________

fimmtudagur, júní 24, 2004

Landsbankadeildin!

Þrír leikir fóru fram á þriðjudaginn, svona enduðu þeir:
Stjarnan-FH.......1-1
Fjölnir-Valur.....0-3
KR-Breiðablik.....4-1

Staðan er því þessi:
.....Lið.............Nettó.........Stig
1...Valur.............20..........15
2...ÍBV...............26.........11
3...KR.................11..........10
4...Breiðablik.......-6...........9
5...Þór/KA/KS......-4...........5
6...Stjarnan.......-13..........3
7...Fjölnir............-7............1
8...FH.................-27..........1

10 markahæstu leikmennirnir:
.........Nafn...................................Lið..........Mörk.........Leikir
1..Margrét Lára Viðarsdóttir.....ÍBV.........10............5
2..Nína Ósk Kristinsdóttir............Valur........7..............5
3..Hólmfríður Magnúsdóttir..........KR............6..............5
4..Kristín Ýr Bjarnadóttir............Valur..........5..............5
5..Olga Færseth........................ÍBV...........5.............5
6..Guðlaug Jónsdóttir..................KR............4..............3
7..Elín Anna Steinarsdóttir........ÍBV..........4..............5
8..Karen Burke..........................ÍBV...........4.............5

9..Hildur Einarsdóttir..............Breiðablik......3..............4
10.Edda Garðarsdóttir................KR.............3..............5
____________________________________________
____________________________________________

mánudagur, júní 21, 2004

2 stig á útivelli!

Í gær, sunnudag, spiluðum við við Þór/KA/KS á Akureyri. Það er ekki mikið að gerast á útivelli, þar sem við erum aðeins búnar að fá 2.stig á útivelli og markatalan 2-2. Á heimavelli hinsvegar erum við búnar að fá öll níu stigin sem í boði eru búin að vera og markatalan 27-1. Leikurinn var ekki góður og skoruðu Þórsstelpur fyrsta markið á 44mín. Margrét Lára var tækluð illa og þurfti að fara útaf og er ekki vitað hversu lengi hún verður frá. Erna Dögg bjargaði svo andliti ÍBV en hún skoraði á 90.mín.

*****
Tekið af Eyjafrettir.is
Heimir:
"Þetta var bara virkilega lélegt hjá okkur. Þær (Þór/KA/KS) voru mjög grimmar, brutu mikið og voru grófar á köflum. Þetta fór í taugarnar á liðinu sem vann 11-0 í síðasta leik og því fór sem fór. Leikmenn ÍBV verða bara að fara átta sig á því að í dag er staðan þannig að önnur lið verða að tuddast í okkur til að eiga möguleika á sigri, við megum ekki láta það fara í taugarnar á okkur. Þessu var öðruvísi farið hér fyrir nokkrum árum þegar við vorum að tuddast í öðrum liðum en stelpurnar verða bara að venjast þessu og spila samkvæmt því. Ef það gerist ekki þá er ekki von á góðu." sagði Heimir.

Þegar hann var spurður að því hvort ÍBV hefði verið heppið að ná í stig þá sagði hann svo ekki vera. "Við vorum klaufar. Við fengum urmull af færum, voru óheppin með skot og klaufar upp við markið."

Bryndís Jóhannesdóttir lék ekki með ÍBV í kvöld og Íris Sæmundsdóttir byrjaði á bekknum en kom inn á í síðari hálfleik.
*****

Á morgun eru þrír leikir:
Stjarnan-FH
Fjölnir-Valur
KR-Breiðablik

Næsti leikur okkar er svo hérna heima þriðjudaginn 29.júní en þá koma Fjölnisstúlkur til Eyja.
____________________________________________
____________________________________________

föstudagur, júní 18, 2004

Þór/KA/KS


Næsti leikur í Landsbankadeildinni er á sunnudaginn kl.16:00 á Akureyrarvelli á móti Þór/KA/KS. Lagt verður af stað á morgun, laugardag. Farið er með Herjólfi og þaðan farið með rútu. Æfing á Akureyri og gist þar. Keyrt til baka á sunnudag eftir leik.

FH-KR spiluðu í gær, 17.júní. KR vann 11-2.
______________________________________________
______________________________________________

miðvikudagur, júní 16, 2004

VISA-Bikarinn!!

Á mánudaginn var dregið í 8.liða úrslit VISA-bikarsins:

(Fjölnir-FH 26.júní = 16.liða úrslit)

fös...09. júl...19:00 Þór/KA/KS-KR.........Akureyrarvöllur
fös...09. júl...19:00 ÍBV-Þróttur R........Hásteinsvöllur
fös...09. júl...19:00 Valur-Breiðablik......Hlíðarendi
lau...10. júl...14:00 Stjarnan-Fjölnir/FH....Stjörnuvöllur
____________________________________________
____________________________________________

þriðjudagur, júní 15, 2004

11-0!!!!

Stjörnustelpur mættu á Hásteinsvöllinn í gær. Fyrsta markið kom snemma. Staðan var 7-0 í hálfleik og einnig kom mark snemma í seinni hálfleik. Mörkin skoruðu: Elín Anna 3, Margrét Lára 3, Olga 2, Karen 1, Sara 1 og Elena 1. Það er ótrúlegt að þetta hafi verið sama liðið og á móti KR þar sem engin var að sýna neitt og ætluðu greinilega allar að gera betur því það voru allar góðar í gær. Næsti leikur er á Akureyri á sunnudaginn á móti Þór/KA/KS.
Markatalan er nú orðin 28-2 og þar af 27-1 á heimavelli.
___________________________________________
___________________________________________

mánudagur, júní 14, 2004

Leikur í kvöld!!



Stjörnustelpur mæta á Hásteinsvöllinn í kvöld. Leikurinn hefst kl.20:00. Vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Sjáumst á vellinum.
Áfram ÍBV!!!!!

____________________________________________
____________________________________________

Visa Bikarinn

Um helgina fóru fram þrír leikir í 16.liða úrslitum VISA Bikarsins:

Hvöt/Tindastóll - Þór/KA/KS.....0-6
Þróttur R. - HK/Víkingur.....3-2
ÍA - Stjarnan.....0-3

Einn leikur er eftir hann fer fram laugardaginn 26.júní en þá mætast Fjölnir og FH á Fjölnisvelli.
____________________________________________
____________________________________________

fimmtudagur, júní 10, 2004

Valur vann

Í gær, miðvikudag fór fram leikur úr fyrstu umferð. Það var leikur Vals og FH og var spilaður á Kaplakrika. Valsstúlkur unnu öruggan sigur eða 0-8. Þær eru því komnar með 2stiga forskot eftir jafnmarga leiki. Þær eru með 9stig en við 7stig. Næsta lið er svo Breiðablik með 6stig.
_____________________________________________
_____________________________________________

miðvikudagur, júní 09, 2004

Stjarnan næst!

Næsti leikur í deildinni er á mánudaginn 14.júní en þá koma Stjörnustelpur í heimsókn á Hásteinsvöllinn. Leikurinn hefst kl.20:00.
Störnustelpur eru í 6.sæti eftir þrjá leiki með 2stig.
_____________________________________________
_____________________________________________

Dómarar í Kvennadeild!

Ætla að biðja fólk um að segja álit sitt á dómurum sem dæma í Kvennadeildinni hérna í comment. Ekki vera feimin!!!
____________________________________________
____________________________________________

Jafntefli í Frostaskjóli!

Leikurinn við KR í gær, þriðjudag endaði 1-1. KR-stelpur skoruðu snemma á okkur eða á 10.mín þegar Fríða(KR) komst í gegn og skoraði. Margrét Lára skoraði en markið var dæmt af og Margréti fékk gula spjaldið en var vitlaus dómur að okkar mati. Einnig skoraði Olga en það var dæmt af vegna rangstöðu. Karen jafnaði á 78mín. Þessi leikur var ekki mikið fyrir augað og er jafntefli sanngjörn úrslit eftir frekar dapran leik.
Næsti leikur er á móti Stjörnunni 14. júní á Hásteinsvellinum.
______________________________________________
______________________________________________

mánudagur, júní 07, 2004

KR-leikurinn á morgun!!


Það verður örugglega hörkuleikur í Frostaskjólinu á morgun, þriðjudag en þar er næsti leikur hjá okkur. Nú er komið að fyrsta útileiknum og það á móti KR. Leikurinn hefst kl.20:00.
Við vonumst til að sjá sem flesta Eyjamenn í Vesturbænum að hvetja okkur áfram.
SJÁUMST Á VELLINUM!!Áfram ÍBV!!!!!!!
Endilega setjið inn í commentið hérna fyrir neðan hvernig þið haldið að leikurinn fari, verið ekki feimin... :o)
______________________________________________
______________________________________________

Þrír leikir í gær!

Þrír leikir fóru fram í gær, sunnudag. Svona enduðu þeir:

Stjarnan - Valur........1-3
Þór/KA/KS - Fjölnir.....1-0
FH - Breiðablik.........0-2

Hægt er að skoða stöðuna í deildinni, nýjustu úrslit og næstu leiki á
KSÍ-síðunni.
_____________________________________________
_____________________________________________

fimmtudagur, júní 03, 2004

Svar KSÍ komið!

Jafnréttisnefnd Vestmannaeyjabæjar um verðlaunafé í Landsbankadeildinni:
Skipting milli karla og kvenna til skammar

Hver eru skilaboð KSÍ og Landsbankans til allra þeirra fjölmörgu kvenna sem leggja stund á þessa íþrótt á Íslandi?

Á fundi jafnréttisnefnda Vestmannaeyjabæjar á þriðjudaginn samþykkt ályktun um skiptingu verðlaunafjár í Landsbankadeildinni í fótbolta þar sem heldur betur hallar á stelpurnar.

Samþykktin er eftirfarandi: Jafnréttisnefnd Vestmannaeyjabæjar tók fyrir á fundi sínum í dag umræðu um skiptingu verðlaunafjár í Landsbankadeildinni í fótbolta. Það vekur undrun og hneykslan nefndarmanna hvernig háttað er skiptingu verðlaunfjár milli kynja í Landsbankadeildinni. Þykir ljóst að KSÍ og Landsbankinn hafa ekki haft jafnréttissjónarmið í huga við þessa ákvarðanatöku. Slík skipting getur vart verið til þess fallin að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna stöðu kynjanna innan íþróttahreyfingarinnar. Hverjar sem skoðanir aðila eru á skiptingu verðlaunafjár verður að teljast óeðlilegt með öllu að ÖLL sæti Landsbankadeildar kvenna fá lægri framlög en fallsæti Landsbankadeildar karla. Hver eru skilaboð KSÍ og Landsbankans til allra þeirra fjölmörgu kvenna sem leggja stund á þessa íþrótt á Íslandi?

Tekið af Eyjafrettir.is***

Svar KSÍ:Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um verðlaunafé vill KSÍ koma eftirfarandi á framfæri:

Verðlaunafé í knattspyrnumótum ræðst eingöngu af verðmæti sjónvarps- og markaðsréttar. Fullur einhugur hefur verið innan KSÍ og aðildarfélaga þess að verðlaunaféð renni óskipt til félaganna sem í hlut eiga. Eins og gefur að skilja er mikill verðmunur á einstökum mótum og staðreyndin er sú að markaðsverðmæti kvennaknattspyrnu er mun minna en karlaknattspyrnu en það ræðst af mörgum þáttum, m. a. umfjöllun fjölmiðla og áhuga almennings. Það er alfarið ákvörðun KSÍ og aðildarfélaga hvernig verðlaunaféð skiptist og kemur Landsbanki Íslands eða VISA Ísland þar hvergi nærri.

Tekið af KSÍ.is***
______________________________________________
______________________________________________

miðvikudagur, júní 02, 2004

VISA-bikarinn!!

UMF Bess. - HK/Víkingur..............0-11

16.liða úrslit:
Keflavík - ÍA........................1-4
ÍR - Fjölnir.........................2-5
Haukar - FH..........................0-8
Fylkir - Þróttur R...................0-4

Næstu leikir:
Hvöt/Tindastóll - Þór/KA/KS Sauðárkróksvöllur
Fylkir/Þróttur - UMF Bess/HK/Víkingur Leikv. óákveðinn
Keflavík/ÍA - Stjarnan Leikv. óákveðinn
ÍR/Fjölnir - Haukar/FH Leikv. óákveðinn

8.liða úrslit hefjast svo 9.júlí.
___________________________________________
___________________________________________

Spjall við Olgu og Margréti á Eyjafrettir.is og Fréttablaðinu!


Margrét Lára og Olga í smá spjalli, smelltu hér til að skoða. En leikurinn hjá þeim á móti Frökkum er kl.17:00 í dag á Laugardalsvelli.
____________________________________________
____________________________________________