Norðurlandamót U-21
Hér er linkur á NM U-21, þar sem Margrét Lára og Elín Anna eru meðal leikmanna:
www.nordic2004.com/
________________________________________
________________________________________
mánudagur, júlí 26, 2004
miðvikudagur, júlí 21, 2004
Stór dagur fyrir Kvennaknattsprynuna!
Verðlaunafé í LD karla og kvenna jafnað
19.07.2004
KSÍ hefur fyrir tilstuðlan Landsbanka Íslands ákveðið að jafna verðlaunafé í Landsbankadeildum karla og kvenna. Um verulega hækkun er að ræða á verðlaunafé til félaga í Landsbankadeild kvenna og með þessari ákvörðun vilja KSÍ og Landsbankinn undirstrika mikilvægi þess að byggja upp kvennaknattspyrnu í landinu. Þá er ákvörðunin viðurkenning til íslenskra knattspyrnukvenna, sem eru í hópi bestu knattspyrnukvenna í heiminum og jafnframt hvatning til frekari afreka.
Með ákvörðun sinni er KSÍ komið í forystu knattspyrnusambanda í heiminum og jafnar með afgerandi hætti verðlaunafé í efstu deildum karla og kvenna. Landsbankinn fagnar eindregið ákvörðun KSÍ, enda er hún í samræmi við þá stefnu bankans að stuðla að auknu jafnræði karla og kvenna á öllum sviðum samfélagsins.
Tekið af http://www.ksi.is
_____________________________________
_____________________________________
Tvær í liði fyrri umferðar!
Svona er liðið.
Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir - Valur
Varnarmenn: Guðrún Sóley Gunnarsdóttir - KRÍris Andrésdóttir - ValurMalfríður Erna Sigurðardóttir - ValurPála Marie Einarsdóttir - Valur
Miðjumenn: Edda Garðarsdóttir - KR, Hólmfríður Magnúsdóttir - KR, Karen Burke - ÍBV, Laufey Ólafsdóttir - Valur
Framherjar: Nína Ósk Kristinsdóttir - Valur, Margrét Lára Viðarsdóttir - ÍBV
Þjálfari umferða 1-7: Elísabet Gunnarsdóttir - Valur
__________________________________
__________________________________
Sigur á FH!
Á sunnudaginn spiluðum við í Kaplakrika á móti FH. Leikurinn endaði 1-7. Margrét Lára setti skoraði 5 mörk í leiknum en það hefur hún aldrei gert áður, svo það er mikill sigur hjá henni. Rachel og Olga skoruðu svo hvort makið. Svo var það hún eyjastelpan Lind sem skoraði fyrir FH. Eftir leikinn fórum við upp í 2.sæti yfir KR vegna markatölu.
Margrét er nú komin með 18 mörk í deildinni og með 6 marka forskot á næsta leikmann um flest mörk, væri flott ef stelpan krækti sér í gullskóinn en það kemur allt í ljós.
Næsti leikur er svo ekki fyrr en föstudaginn 6.ágúst við KR hérna heima.
__________________________________________
__________________________________________
fimmtudagur, júlí 15, 2004
Næsti leikur!
Næsti leikur er á sunnudaginn við FH í Kaplakrika. Leikurinn hefst kl.16:00.
Hinir leikirnir:
fös.16.júlí 20:00 KR-Valur KR-völlur
mán.19.júlí 20:00 Stjarnan - Fjölnir Stjörnuvölur
mán.19.júlí 20:00 Þór/KA/KS - Breiðablik Akureyrarvöllur
mán.26.júlí 20:00 FH - Þór/KA/KS Kaplakrikavöllur
______________________________________________
______________________________________________
Fyrsti útisigurinn!!
Í gær, spiluðum við í Kópavoginum á móti Breiðablik. Leikurinn endaði 0-4 Margrét Lára skoraði 2 mörk og Olga 2 mörk.
Margrét Lára er því komin með 13 mörk í deildinni í sumar og Olga 9 mörk.
Leikir 8.umferðar:
Valur-FH 5-0
Þór/KA/KS-Stjarnan 3-3
Fjölnir-KR 0-3
Breiðablik-ÍBV 0-4
___________________________________________
___________________________________________
þriðjudagur, júlí 13, 2004
Breyttur leiktími!
Búið er að breyta leiktímanum á Breiðabliksleiknum. Leikurinn verður á morgun, miðvikudag kl.20:00 en ekki á fimmtudaginn. Leikdeginum var breytt vegna Gullmótsins sem er haldið í Kópavoginum hvert ár.
_____________________________________________
_____________________________________________
mánudagur, júlí 12, 2004
Spjöld í Landsbankadeildinni í fyrri umferð
Lið..........Gul.....Rauð
FH.............6.......0
ÍBV............5.......0
KR.............5.......0
Fjölnir........5.......0
Stjarnan....3.......0
Valur..........2.......0
Breiðablik...2.......1
Þór/KA/KS.....Engin færsla til.
Upplýsingar teknar af KSÍ-síðunni.
______________________________________________
______________________________________________
Landsbankadeild Kvenna - Afhendingu viðurkenninga frestað
*****KSÍ-síðunni!*****
Afhendingu viðurkenninga fyrir umferðir 1-7 í Landsbankadeild kvenna, sem fara átti fram mánudaginn 12.júlí, hefur verið frestað um eina viku, til mánudagsins 19.júlí.
Veittar verða viðurkenningar fyrir lið umferða 1-7 (11 leikmenn), besta leikmann og besta þjálfara. Mynduð var nokkurs konar valnefnd til að standa að valinu, sú sama og fyrir Landsbankadeild karla. Einn leikur úr 6. umferð fer þó ekki fram fyrr en 26. júlí, FH - Þór/KA/KS.
_____________________________________________
_____________________________________________
laugardagur, júlí 10, 2004
Seinni umferð að hefjast
13.júlí Valur - FH Hlíðarendi
13.júlí Þór/KA/KS - Stjarnan Akureyrarvöllur
13.júlí Fjölnir - KR Fjölnisvöllur
15.júlí Breiðablik - ÍBV Kópavogsvöllur
16.júlí 2004 - 20:00 KR - Valur KR-völlur
_______________________________________
_______________________________________
Komnar í 4liða úrslit!
Leikurinn á móti Þrótti R sem fór fram í gær endaði 8-0, staðan var 4-0 í hálfleik. Mörkin skoruðu Margrét Lára 2, Biddý 2, Olga 1, Mary 1, Elena 1 og Sara 1.
Tveir aðrir leikir voru í gær í 8liða úrslitum:
Þór/KA/KS - KR 0-2
Valur - Breiðablik 2-1
Einn leikur er svo í dag en þá eigast við Stjarnan og Fjölnir.
_______________________________________
_______________________________________
föstudagur, júlí 09, 2004
VISA-bikarinn í kvöld!!
8liða úrslit VISA-bikarsins hefjast í kvöld. Við spilum við Þrótt Reykjavík kl.19:00 á Hásteinsvelli.
Nú er ekkert annað að gera eftir að við misstum Íslandsmeistaratitilinn úr okkar höndum að stefna ótrauðar á þennan bikar, VISA-Bikarinn.
Svo við þurfum á ykkar hjálp að halda, sjáumst á vellinum í kvöld!!!
Áfram ÍBV!
_____________________________________________
_____________________________________________
þriðjudagur, júlí 06, 2004
8 liða úrslit!!
fös..09.júlí..19:00..Þór/KA/KS-KR......Akureyrarvöllur
fös..09.júlí..19:00..ÍBV-Þróttur R.....Hásteinsvöllur
fös..09.júlí..19:00..Valur-Breiðablik..Hlíðarendi
lau..10.júlí..14:00..Stjarnan-Fjölnir..Stjörnuvöllur
_____________________________________________
_____________________________________________
Karen tognuð!
Karen var tækluð illa í leiknum í gær en hún er búin að fara í skoðun og kom í ljós að liðböndin tognuðu og er því frá í nokkra daga. Þetta fór því betur en á horfðist en þetta leit mjög illa út á vellinum. Það er sjaldan sem þessi manneskja kvartar en hún var mjög kvalin í gær og því vissi enginn hvað koma skyldi.
_____________________________________________
_____________________________________________
Valur vann!
Í gær, mánudag, spiluðum við við Val á Hlíðarenda. Við vorum betra liðið í leiknum en það er ekki nóg. Fyrstu 20mínúturnar fengum við góð færi en þá kom fyrsta markið, sem var ekki mikið fyrir augað en telur, Valsstúlkur skoruðu og var þetta eina færið sem höfðu komist í. Staðan var 1-0 í hálfleik. Sem áður fengum við dágóðan slatta af færum sem ekki náðist að nýta, þær bættu við tveimur mörkum, staðan orðin 3-0. Karen var tækluð illa, fékk tveggjafótatæklingu í hnéð og þurfti að fara af leikvelli, sárkvalin. Leikmaður Vals fékk gult spjald sem hefði átt að vera beint rautt. Margrét Lára tók aukaspyrnuna og skoraði, 3-1. Við fengum fleiri færi en aldrei vildi boltinn inn og því fór sem fór. Mörkin sem þær skoruðu voru að mestu eftir mistök af okkar hálfu og þetta er eitthvað sem þarf að laga. Nú verðum við að treysta á að hin liðin fari að stela stigum af þeim því við getum ekki gert neitt í þessu núna, við hefðum getað það í gær en það gekk ekki. Nú eru Valsstúlkur með 21 stig í 1.sæti deildarinnar og því KR vann stórsigur á Þór/KA/KS fyrir norðan, 0-9, eru þær komnar í 2. sætið með 16 stig og við dottnar niður í 3.sæti með 14 stig.
Það er því ekkert annað fyrir okkur að gera en að vona að hin liðin fari að stela stigum af Val og KR og við verðum auðvitað að fara að klára okkar leiki hvort sem þeir eru á heima- eða útivelli.
__________________________________________
__________________________________________
mánudagur, júlí 05, 2004
Valur í kvöld!!
Í kvöld, mánudag, kl.20:00 spilum við við Val á Hlíðarenda. Þetta er ótrúlega mikilvægur leikur fyrir okkur. Valsstúlkur eru í 1.sæti með 18 stig og hafa unnið alla sína leik. Við hins vegar erum í 2.sæti með 14 stig, 4 sigrar og 2 jafntefli. Það sem skilur því liðin af eru 4 stig og er það því mjög mikilvægt fyrir okkur að vinna í kvöld ef við ætlum að halda áfram að keppa um titilinn.
Við vonumst til að sjá sem flesta Eyjamenn á vellinum í kvöld!
Áfram ÍBV!!!!!
Þór/KA/KS tekur svo á móti KR í kvöld á Akureyri.
Hægt er að skoða stöðu, næstu leiki og nýjustu úrslit á KSÍ-síðunni.
____________________________________________
____________________________________________
