Gull- og silfurskórinn til Eyja!!
Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV skoraði 23 mörk í 14 leikjum.
Olga Færseth ÍBV skoraði 20 mörk í 14 leikjum.
Nína Ósk Kristinsdóttir Valur skoraði 16 mörk í 14 leikjum.
_________________________________________
_________________________________________
A-landsliðshópurinn gegn Bandaríkjunum
A landslið kvenna mætir Ólympíumeisturum Bandaríkjanna í tveimur vináttulandsleikjum ytra síðar í mánuðinum. Fyrri leikurinn fer fram í Rochester í New York fylki 25. september, en síðari leikurinn í Pittsburgh í Pennsylvaníu 29. september. Helena Ólafsdóttir, þjálfari íslenska liðsins, hefur valið 18 manna hóp fyrir leikina. Margrét Lára og Olga eru í hópnum.
________________________________
________________________________
63-9!!
Leikurinn á laugardaginn endaði 7-0 fyrir ÍBV. Olga skoraði þrennu, Margrét Lára, Elín Anna, Elena og Sammy skoruðu svo eitt mark hver.
Markatalan er því orðin 63-9 eða 54 mörk í plús. Flest mörk fyrir liðið: Margrét Lára er búin að skora 21 mark, Olga 15 mörk, Elín Anna 7 mörk og Karen 5 mörk.
Hinir þrír leikirnir í umferðinni fara svo fram í dag. Svo er landsliðspása í um tvær vikur.
Næstu leikir eru svo ekki fyrr en laugardaginn 28.ágúst en þá mætast:
Fjölnir - ÍBV.....Fjölnisvöllur
Valur - Breiðablik.....Hlíðarendi
Stjarnan - KR.....Stjörnuvöllur
Allir leikirnir hefjast kl.14:00
Sun. 29.ágúst 14:00 mætast svo
Þór/KA/KS - FH á Akureyrarvelli
________________________________________
________________________________________
mánudagur, ágúst 16, 2004
laugardagur, ágúst 14, 2004
Leikur í dag!!
Þór/KA/KS mætir á Hásteinsvöllinn í dag. Leikurinn hefst kl.16:00. Það er eins gott að þessi leikur fari betur en síðasti leikur á móti þeim sem fór fram á Akureyri sem endaði 1-1.
En í dag er frábært veður og við hvetjum alla til að mæta á völlinn enda lítið eftir af mótinu og aðeins einn annar heimaleikur eftir í deildinni í sumar.
Vonumst til að sjá ykkur sem allra flest!
Áfram ÍBV!!
Hinir leikir í umferðinni fara fram á mánudag:
FH - Stjarnan.....Kaplakrikavöllur
Valur - Fjölnir.....Hlíðarendi
Breiðablik - KR.....Kópavogsvöllur
_________________________________________
_________________________________________
föstudagur, ágúst 13, 2004
0-3 í Garðabæ!!
S.l. þriðjudag var haldið í bæinn og spilað á móti Stjörnunni í Garðabæ. Spilað var á gervigrasi, en stjörnufólk er búið að skipta út venjulegu grasi fyrir gervigras. Leikurinn var rólegur, staðan var 0-2 í hálfleik en endaði 0-3. Mörkin skoruðu Margrét Lára 2 og Olga 1.
Margrét Lára og Olga eru markahæstar í deildinni, Margrét Lára með 21 mark í 11 leikjum og Olga með 14 mörk í 11 leikjum. Næst á eftir þeim er svo Hólmfríður Magnúsdóttir, KR, með 12 mörk í 9 leikjum og Nína Ósk Kristinsdóttir, Val, með 12 mörk í 11 leikjum.
Næsti leikur er svo á morgun, laugardag kl.14:00 á Hásteinsvelli við Þór/KA/KS.
_________________________________________
_________________________________________
þriðjudagur, ágúst 10, 2004
Stjörnuvöllur í kvöld!!
Leikurinn við Stjörnuna hefst kl.19:00 á Stjörnuvelli. Við vonum að sem flestir Eyjamenn láti sjá sig á leiknum enda allir leikir mjög mikilvægir.
Aðrir leikir í kvöld eru:
KR - FH.....KR-völlur
Þór/KA/KS - Valur.....Akureyrarvöllur
Fjölnir - Breiðablik.....Fjölnisvöllur
__________________________________________
__________________________________________
laugardagur, ágúst 07, 2004
23 stig komin í hús og Olga með 4 mörk!!
Góður sigur á KR í gær, staðan var 3-1 í hálfleik en hefði getað verið meiri munur því að fullt af færum litu dagsins ljós. Staðan var orðin 2-0 eftir 15 mínútur, Olga með bæði og hefði getað fullkomnað þrennuna á 17 mínútu. Margrét Lára sem setti þriðja markið. Þetta var mjög góður fyrrihálfleikur og eins og áður sagði voru fullt af færum enda mjög gott spil og mikill hraði.
Í seinni hálfleik datt leikurinn aðeins niður, KR-ingar skoruðu rétt eftir hálfleik beint úr aukaspyrnu, langt utan af velli sem fór yfir Claire. Elín Anna fékk gult spjald fyrir dapurt brot. Rachel fékk gat á hausinn og þurfti að fara útaf, Sammy kom inná í staðinn í fyrsta skiptið í sumar. Liðið tók heldur betur við sér undir lokinn, Olga setti 2 mörk til viðbótar og Mhairi sem kom inná sem varamaður skoraði rétt eftir að hún kom inná eftir frábært spil.
Þetta var mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið og er KR nánast búið að missa af titlinum ef Valur skildi misstíga sig sem er okkar séns á titlinum.
Annar leikur fór fram í gær en Breiðabliksstelpur tóku á móti FH á Kópavogsvelli og FH vann þar 2-1.
Í dag kl.14:00 mætast svo Valur og Stjarnan á Hlíðarenda og Fjölnir og Þór/KA/KS á Fjölnisvelli. Við verðum að bíða og vona að eitthvað lið nái stigum af Val svo það sé möguleiki fyrir okkur og vonandi verður það í dag.
Næsti leikur er svo í Garðabænum á móti Stjörnunni á þriðjudaginn (10.ágúst) kl.19:00.
__________________________________________
__________________________________________
föstudagur, ágúst 06, 2004
Allir á völlinn í kvöld!!!
Allir að mæta í kvöld á Hásteinsvöllinn. KR stúlkur mæta til Eyja og þetta verður án efa hörkuleikur eins og allir leikir milli ÍBV og KR, hvort sem það er í kvenna- eða karlaflokkum.
Leikurinn hefst kl.19:00.
__________________________________
__________________________________
Búið að draga!!
Dregið var í undanúrslitum VISA-bikarsins í hádeginu:
þri. 31. ágú...17:30 ÍBV - Stjarnan Hásteinsvöllur
mið. 01. sep....17:30 Valur - KR Hlíðarendi
Úrslitaleikurinn er svo laugardaginn 11.september á Laugardalsvelli kl.16:00.
__________________________________________
__________________________________________
fimmtudagur, ágúst 05, 2004
Dregið í undanúrslit VISA-Bikarsins!
Á morgun, föstudag verður dregið í undanúrslitum VISA-Bikarsins á Hótel Loftleiðum. Liðin sem eru í pottinum eru ÍBV, KR, Valur og Stjarnan.
__________________________________________
__________________________________________
KR til Eyja á morgun!!!
Þá er komið að næsta leik í deildinni en hann er á morgun, föstudag við KR.
Leikurinn hefst kl.19:00 á Hásteinsvelli.
KR og ÍBV eru með jafnmörg stig eða 20 stig, KR í 3.sæti með 27 mörk í plús en ÍBV með 40 mörk í plús. Þetta verður því hörkuleikur í Eyjum á morgun.
Allir á völlinn!
Áfram ÍBV!!
___________________________________________
___________________________________________
